Header_Ad
Home Box Emin Kadri með öruggan sigur í Kaupmannahöfn

Emin Kadri með öruggan sigur í Kaupmannahöfn

0

Emin Kadri Eminsson kom, sá og sigraði gegn Ungverjanum Erik Mato, í sínum fjórða atvinnumannabardaga á Big Boys Boksegalla í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Emin stjórnaði bardaganum allt frá upphafi hans og sigraði á einróma dómaraúrskurði eftir fjögurra lotna bardaga.

Emin leit mjög vel út bardaganum og virtist vera getustigi ofar en andstæðingurinn, Erik Mato, sem lét þó ekkert vaða yfir sig og gaf Emin alveg ágætis mótspyrnu. Emin sagði sjálfur í viðtali við MMA Fréttir beint eftir bardaga að það hafi verið smá erfitt að reikna hann út til að byrja með, hann hafi verið að kasta út viltum yfirhandar höggum sem komu úr skrítnum áttum. Emin sagðist hafa “settle-að” betur inn eftir fyrstu lotuna og komist í aðeins betra flæði. Erik Mato virtist mikið vilja clincha þegar Emin fór að hitta hann sem Emin oftar en ekki svaraði með því að leggja þyngdina sína á hann. Hann sagði ef hann ætlaði að vera “dirty” þá yrði hann það líka tilbaka.

Emin fór að hitta betri og hreinni höggum þegar líða fór á bardagann. Emin hitti alveg hreinu höfuðhöggi í fjórðu lotu sem tók Mato úr jafnvægi og þjarmaði hann að honum eftir það. Skömmu eftir það opnaðist tækifæri fyrir hægrihandar skrokkshögg sem Emin fann og sló Mato niður með því.

Emin sagði eftir bardagann að hann hafi aldrei haft jafn gaman af því að keppa eins og í þessum bardaga. Hann talaði vel um ferðina sjálfa í heild, að fá að berjast samhliða Kolbeini Kristinssyni, en þetta er í fyrsta skipti sem þeir tveir karlkyns atvinnumennirnir okkar í sportinu berjast á sama viðburðinum.

Emin er strax kominn með auga á næsta viðburði en hann stefnir á að keppa fyrsta sex lotu bardagann sinn í Finnlandi í lok ágúst en það á ennþá eftir að koma í ljós hver andstæðingurinn hans verður.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version