Header_Ad
Home Box Kolbeinn og Emin berjast í Kaupmannahöfn í kvöld – tuttugasti bardagi Kolla

Kolbeinn og Emin berjast í Kaupmannahöfn í kvöld – tuttugasti bardagi Kolla

0

Atvinnuhnefaleikamennirnir Kolbeinn Kristinsson og Emin Kadri Eminsson berjast á Big Boys Boksegalle í Kaupmannahöfn í kvöld. Kolbeinn er á leið í sinn tuttugasta bardaga á meðan Emin er á leið í sinn fjórða. Þetta er í fyrsta skipti sem tveir íslenskir karlkyns atvinnuboxarar berjast á sama viðburðinum en fyrir 10 árum, nánast upp á dag, börðust Kolli og Valgerður saman einnig í Kaupmannahöfn.

Kolbeinn mætir Tékkanum Pavel Saur sem er mjög reyndur með langan feril og 52 bardaga að baki. Kolbeinn talar vel um andstæðinginn sinn og segir hann geta verið erfiðan að eiga við en ef allt gengur samkvæmt leikáætlun þá ætti hann að klára bardagann með rothöggi eins og hann hefur gert í þrettán skipti af nítján hingað til. Það stóð til að Kolbeinn myndi berjast fyrr í mánuðinum í fyrsta skipti á Íslandi með liðþófameiðsli komu í veg fyrir það. Smávægileg meiðsli komu reyndar einnig upp hjá Kolla skömmu fyrir þennan bardaga en hann lætur það ekki stöðva sig. Glöggir tóku eftir því að hann var í mislituðum sokkum þegar hann steig á vigtina í gær en hann greindi frá því viðtali við MMA Fréttir að hann hefði tognað í kálfanum og væri í sérstökum sokk sem styður við kálfann.

Emin Kadri mætir Ungverjanum Erik Mato sem hefur fimm bardaga reynslu úr atvinnuhnefaleikum en hefur aðeins unnið einn af þeim á meðan Emin hefur unnið alla sína þrjá hingað til. Eini sigurinn hans Mato kom hinsvegar eftir rothögg þannig það er greinilegt að hann getur verið hættulegur og er greinilega hraustur að sjá og virkaði mjög hress í vigtuninni.

Bardagakvöldið hefst kl. 17 að íslenskum tíma og verður sýnt á Sýn Sport og haldið verður áhorfspartý í Mini Garðinum fyrir þá sem vilja upplifa alvöru stemningu yfir bardögunum tveimur. Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar í fótbolta kemur í veg fyrir að hægt sé að byrja kl 17 en hann stendur yfir frá 16-18 og fer vonandi ekki í framlengingu. Útsendingin frá Kaupmannahöfn hefst þá kl 18 í Mini Garðinum að leik loknum og vonandi verður Emin ekki ennþá stiginn inn í hring en bardaginn hans er sá þriðji í röðinni. Kolbeinn verður svo í sjöunda bardaganum af níu alls.

Áfram Ísland!

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version