Aðalbardagi kvöldsins á UFC London er sannkölluð prófraun þegar hinir ósigruðu Movsar Evloev og Lerone Murphy mætast í fjaðurvigtinni. Báðir hafa byggt upp sterkan feril hingað til og nú fæst skýrari mynd af því hver þeirra tilheyrir toppnum í deildinni.
Evloev hefur verið einn stöðugasti bardagamaður deildarinnar, þekktur fyrir yfirburða glímu og pressustíl. Hann hefur unnið alla sína bardaga í UFC, oft með því að stjórna andstæðingum sínum frá upphafi til enda. Þó hann hafi aldrei klárað bardaga hefur hann sýnt að hann getur slökkt á styrkleikum andstæðinga og unnið sannfærandi sigra.
Murphy kemur hins vegar með annan stíl inn í bardagann. Hann er tæknilegur striker með góðar hreyfingar og tímasetningar, og hefur sýnt framfarir með hverjum bardaga. Hann hefur einnig sannað að hann getur tekist á við erfiðar aðstæður og haldið ró sinni undir pressu. Hann átti eitt besta rothögg ársins í fyrra þegar hann rotaði Aaron Pico með snúningsolnboga.
Samkvæmt veðbönkum er Evloev talinn nokkuð sigurstranglegri, en sem dæmi má nefna stuðlana á Coolbet þar sem hann er 1.40 á móti 3.05 á Murphy, sem endurspeglar að hann sé liklegri þrátt fyrir að bardaginn sé talinn nokkuð jafn á pappír. Margir hafa bent á að þessi munur á stuðlum endurspegli ekki alveg hversu hættulegur Murphy getur verið.
Spurningin fyrir kvöldið er einföld: Nær Evloev að koma bardaganum niður og stjórna eins og áður, eða tekst Murphy að halda bardaganum standandi og nýta höggkraft sinn?
Athygli vekur að Jean Silva er mættur til London til að fylgjast með bardaganum. Hann hefur jafnframt gefið til kynna að hann sé kominn til að ganga frá samningi um titilbardaga, sem gæti breytt stöðunni í toppbaráttunni. Ef það gengur eftir þýðir það að sigurvegari aðalbardagans þarf líklega að bíða lengur eftir titilskoti sínu, þrátt fyrir að margir hafi litið á þennan bardaga sem óopinberan „title eliminator“.
Það setur aukna spennu á kvöldið, þar sem mikið er í húfi en framtíðarmynd deildarinnar gæti samt tekið óvænta stefnu. Sigur í London skiptir því gríðarlegu máli, en gæti þó ekki dugað strax til að tryggja næsta skref í átt að titlinum.
Á meðal helstu bresku nafna á kortinu eru Michael „Venom“ Page, Nathaniel Wood og Christian Leroy Duncan, ásamt upprennandi stjörnum eins og Luke Riley, Shem Rock og Kurtis Campbell sem fá tækifæri til að skína fyrir framan heimafólk.
