Luke Riley hélt áfram sigurgöngu sinni þegar hann sigraði Michael Aswell Jr. með einróma dómaraúrskurði í co-main event bardaga kvöldsins á UFC London í O2 Arena fyrr í kvöld.
Báðir menn mættu sterkir til leiks og voru tilbúnir að taka áhættu og berjast af ákefð frá fyrstu mínútu. Eitthvað sem vantaði alfarið í bardaganum á undan þeim milli Michael Venom Page og Sam Patterson.
Aswell byrjaði bardagann af krafti og sótti hart að Riley. Hann keyrði Riley upp að búrinu og lenti góðum höggum snemma. Hann sýndi mikla seiglu og hætti aldrei að sækja þrátt fyrir að Riley hafa vaxið vel inn í bardagann og lent þungum höggum. Riley náði smám saman yfirhöndinni með nákvæmari og þyngri höggum.
Þrátt fyrir að Aswell hafi mögulega lent fleiri höggum yfir bardagann í heild, voru það högg Riley sem ollu meiri skaða og vógu þyngra í augum dómaranna. Dómarar skoruðu bardagann 30-27 fyrir Riley á öllum spjöldum, sem þýðir skýran sigur þó bardaginn hafi verið jafnari en tölurnar gefa til kynna.
Riley er nú ósigraður með 13 sigra og heldur áfram að styrkja stöðu sína sem einn af áhugaverðustu nýliðum fjaðurvigtarinnar. Eftir bardagann var Riley sjálfur gagnrýninn á frammistöðu sína og sagðist ekki alveg sáttur, þrátt fyrir sigurinn, sem sýnir metnað hans til að bæta sig enn frekar.
