Home Erlent Skiptar skoðanir um úrslit aðalbardaga UFC London

Skiptar skoðanir um úrslit aðalbardaga UFC London

0

Movsar Evloev sigraði Lerone Murphy með meirihluta ákvörðun í aðalbardaga UFC London í O2 Arena í gærkvöldi en niðurstaðan hefur vakið miklar deilur meðal bardagamanna og aðdáenda. Strax eftir bardagann fóru viðbrögð að berast á samfélagsmiðlum, sérstaklega á X, þar sem margir þekktir bardagamenn voru ósammála niðurstöðunni.

Evloev byrjaði bardagann sterkt, virtist vera til í að standa og skiptast á höggum við Murphy og skaut ekki í fellu fyrr en seint í þriðju lotu. Dómararnir voru skiptir strax frá fyrstu lotu, tveir gáfu hana til Evloev og sá þriðji til Murphy. Allir dómararnir gáfu Murphy aðra lotu en það var álit beggja fréttamanna MMA Frétta, sem að vísu sátu nokkuð langt upp í stúku, að Evloev hefði líklega tekið fyrstu tvær en önnur gæti mögulega verið klofin milli dómara. Dómararnir þrír gáfu svo allir þriðju lotu til Evloev á meðan MMA Fréttir ályktuðu að þar væri Murphy líklega að vinna sína fyrstu lotu í bardaganum skýrt.

Evloev átti mjög sterkar fjórðu og fimmtu lotu og tekur þær samkvæmt öllum dómurum og fréttamönnum MMA Frétta en Evloev missti stig í fjórðu lotu fyrir sitt annað neðanbeltisspark í bardaganum svo sú lota er skoruð 9-9.

Dómarar skoruðu bardagann 48-47, 48-47 og 47-47, sem þýddi meirihluta sigur fyrir Evloev.

„Murphy vann þetta,“ skrifaði fyrrum bardagamaðurinn Darren Till á X og bætti við að hann teldi Murphy hafa verið áhrifameiri þegar kom að höggskiptum.

„Close fight, but I had Murphy 3-2,“ sagði Paul Felder og tók undir að bardaginn hefði getað fallið hvorum megin sem var.

Þá skrifaði Belal Muhammad einfaldlega: „Damage over control. Murphy did enough.“

Ekki voru þó allir sammála. Sumir bentu á að stöðug pressa og stjórn Evloev hefði vegið þyngra samkvæmt dómreglum UFC en samkvæmt opinberu tölfræði UFC voru þeir mjög jafnir þegar kom að þýðingarmiklum höggum.

„Evloev with the control and pace. Not pretty, but effective,“ skrifaði Aljamain Sterling og studdi þannig niðurstöðuna.

Umræðan endurspeglar vel hversu erfitt getur verið að dæma svona bardaga, þar sem meta þarf áhrif högganna gegn stjórn og yfirráðum í glímu.

Þrátt fyrir sigurinn eru margir sem telja að Murphy hafi gert nóg til að fá sigurinn, eins og Michael Bisping sem lýsti bardögunum og tók viðtöl inni í búri að þeim loknum. Það er því ljóst að þessi niðurstaða mun verða rædd áfram næstu daga.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version