Michael “Venom” Page sigraði Sam Patterson með einróma dómaraúrskurði á UFC London, en bardaginn sjálfur vakti gríðarlega neikvæð viðbrögð og gæti farið í sögubækurnar sem einn sá leiðinlegasti sem sést hefur í UFC.
Stemningin í O2-höllinni byrjaði vel, en breyttist hratt í baul og óánægju þegar lítið sem ekkert gerðist inni í búrinu. Bardaginn einkenndist af mikilli varfærni beggja manna, þar sem hvorugur vildi taka áhættu og opna sig.
Tölfræðin segir allt sem segja þarf. Aðeins um 39 högg hittu markið í öllum bardaganum samanlagt og engin fellitilraun skilaði árangri. Page sjálfur lenti aðeins um 27 höggum á meðan Patterson náði 12. Áhorfendur létu óánægju sína skýrt í ljós og bauluðu ítrekað, bæði á meðan bardaganum stóð og eftir að niðurstaðan var tilkynnt. Dómarar skoruðu bardagann 30-27, 29-28 og 29-28 fyrir Page.
Jafnvel UFC forsetinn Dana White var spurður út í bardaginn og kallaði þetta einfaldlega „slæman bardaga“ án þess að gefa upp of mikið um ónáægju sína en hann á að hafa yfirgefið salinn áður en bardaganum lauk, sem segir sitt um hversu lítil skemmtun var í boði.
Margir höfðu búist við skemmtilegum striking-bardaga, enda er Page þekktur fyrir skemmtilegan stíl. Í staðinn fengu áhorfendur taktískan en afar tíðindalítinn bardaga þar sem hvorugur náði að gera neitt af viti. Þrátt fyrir sigurinn gerði frammistaðan lítið fyrir stöðu Page innan UFC, og umræðan eftir kvöldið snerist meira um hversu slakur bardaginn var heldur en hver vann.
Sumir hafa jafnvel gengið svo langt að kalla þetta einn versta bardaga í sögu UFC – og miðað við tölurnar og viðbrögðin er erfitt að mótmæla því.
