Þorgils Eiður Einarsson atvinnumaður í Muay Thai mun berjast í dag gegn Þjóðverjanum Soeren í dag í Tælandi. Bardaginn fer fram kl. 21:00 í Tælandi sem þýðir að við Íslendingar náum honum kl. 14:00 á okkar tíma.
Þorgils samþykkti bardagann með skömmum fyrirvara en til stóð að hann myndi taka rematch við Jomsalad sem hann barðist við fyrir tveimur árum. Sá þurfti að draga sig úr keppni en Þorgils var boðið að berjast við þennan Þjóðverja í fyrradag. Eins og svo oft þegar kemur að Muay Thai í Tælandi eru upplýsingar af skornum skammti og Þorgils sagði í samtali við fréttamann MMA Frétta að viti ekki einu sinni hvort nafnið á andstæðingi sínum sé rétt skrifað á posternum.
Lifandi streymi má finna hér að neðan:
