Header_Ad
Home Box Hnefaleikafélag Reykjavíkur með 3 gull og 3 silfur á Pirkka

Hnefaleikafélag Reykjavíkur með 3 gull og 3 silfur á Pirkka

0

Hnefaleikafélag Reykjavíkur/WCBA fór á Pirkka eins og 2025 og nú með 6 keppendur. Það voru þeir Neilas Sachniukas í -46kg U17,, Adam Alabsi í -52kg U17, Hilmar Þorvarðarson í -54kg U17, Sigurbergur Einar Jóhannsson í -60kg U17, Ronald Bjarka Mánason í -50kg U19 og Kristján Eðvarð Sigurvinsson í -70kg U19.

Á fyrri deginum kepptu Adam beint í úrslitum, Hilmar í undanúrslitum, Sigurbergur beint í úrslitum og Ronald beint í úrslitum. Hilmar stoppaði andstæðing sinn í fyrstu lotu og fór áfram í úrslit, Adam vann með einróma dómaraúrskurði með virkilega flottir frammistöðu og fékk gull. Sigurbergur stoppaði andstæðing sinn í annarri lotu eftir mikla yfirburði og fékk gull, Sigurbergur eða “Sibbi” eins og hann er kallaður hefur verið að gera mjög flotta hluti og það verður gaman ap sjá hver næstu skref hans verða. Ronald gerði virkilega vel og vann sænskan andstæðing sinn með einróma dómaraúrskurði og fékk gull sem gerir það sjöunda alþjóðlega mótið í röð sem hann vinnur og hefur vakið mikla athygli, bardagi þeirra var valinn “bardagi dagsins” að mati evrópska hnefaleikasambandsins og er það mikil viðurkenning.

Á sunnudeginum kepptu Neilas beint í úrslitum, Hilmar í úrlsitum og Kristján beint í úrslitum. Neilas mætti virkilega reyndum kappa frá Wales sem hafði reynslulega yfirburði og bardaginn stöðvaður snemma. Hilmar keppti síðan við sigurvegara Pirkka frá 2025 og finnska boxara númer 1 í þeirra flokki, Hilmar gerði vel en reynslumunurinn mikill og einróma tap niðurstaðan og gott silfur í bankann. Kristján keppti síðan og gerði virkilega vel í fyrstu lotu sem hann vann einróma en lota tvö var alveg á hinn veginn og síðasta lotan því hrein úrslita lota sem féll hinum megin því miður.

Heildarniðurstaða frá HR/WCBA því 3 Gull og 3 Silfur á þessu flotta móti sem Pirkka er.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version