Header_Ad
Home Box Ísak Guðnason með bronsverðlaun á Eindhoven Box Cup

Ísak Guðnason með bronsverðlaun á Eindhoven Box Cup

0

Ísak Guðnason frá Hnefaleikafélagi Kópavogs keppti á hinu feykisterka alþjóðalega hnefaleikamóti Eindhoven Box Cup um síðustu helgi og vann þar bronsverðlaun.

Ísak og Kjartan Valur Guðmundsson þjálfari hans flugu út á fimmtudeginum, fengu ekki bardaga á föstudeginum, heldur fóru beint í átta manna úrslit (quarter-final) á laugardeginum þar sem Ísak mætti sterkum Þjóðverja. Ísak taldi sig vita að Þjóðverjinn væri að leita eftir stórum hægri handar höggum og leikáætlunin var því að hafa vinstri hátt upp og boxa fyrir utan. Fyrsta lotan fór ekki alveg eins og stefnt var að en Ísak og Kjartan gerðu réttu breytingarnar í annarri og þriðju lotu. Aðra lotuna tók Ísak að eigin sögn á betri tækni og í þeirri þriðju fannst honum Þjóðverjinn fjara út á orku svo Ísak keyrði bara á hann með góðum árangri. Ísak sagði í samtali við MMA Fréttir að hann hefði mögulega getað farið auðveldari leið að sigrinum en hann vill alltaf gera bardagana sína skemmtilega fyrir áhorfendur og gera eins mikið og hann getur.

Daginn eftir voru það undanúrslit gegn Búlgaríu. Ísak vissi að sá andstæðingur væri pínulítið “awkward” eða með óhefðbundin stíl og leikáætlunin var að vera sharp og byrja á að fjárfesta í skrokkshöggunum. Fyrsta lotan gekk ekki nógu vel að sögn Ísaks en honum fannst hann gera réttar breytingar í annarri lotu sem var töluvert betri. Samt sem áður gáfu dómararnir andstæðingnum lotuna þannig Ísak vissi að hann þyrfti að klára hann í þriðju og loka lotunni svo hann fór inn í hana með það að markmiði. Ísak átti góð augnablik í lotunni, Búlgarinn var orðinn þreyttur en Ísaki tókst því miður ekki að stoppa hann.

En Ísak var ánægður með medalíuna og frammistöðu sína gegn sterkum andstæðingum á alþjóðlegi móti á mjög háu stigi og segir þetta hafi gefið honum bensín á eldinn.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version