Header_Ad
Home Box Hnefaleikafólk frá USA flykkist til Íslands

Hnefaleikafólk frá USA flykkist til Íslands

0

Fyrir 25 árum hélt núverandi formaður Hnefaleikafélags Hafnarfjarðar ásamt hópi ungra íslenskra hnefaleikamanna til Duluth í Bandaríkjunum. Á þeim tíma voru áhugamannahnefaleikar enn ólöglegir á Íslandi og var ferðin hluti af baráttunni fyrir lögleiðingu íþróttarinnar hér á landi. Í ferðinni kepptu íslensku hnefaleikamennirnir í tveimur bardögum vestanhafs.

Nú, aldarfjórðungi síðar, er sagan að ganga í hring – Bandarískir hnefaleikarar koma til Hafnarfjarðar

Bandaríski hnefaleikamaðurinn og þjálfarinn Zach Walters, „Jungle Boy“, hyggst koma til Íslands með 14 hnefaleikara frá Minnesota sem munu mæta íslenskum keppendum þann 12. desember.

Ekki verður aðeins um keppnisferð að ræða. Með bandaríska hópnum er von á fréttamönnum, áhrifavöldum, fjölskyldum og öðrum fylgdarmönnum, þannig að um stóran hóp verður að ræða sem ferðast sérstaklega til Íslands vegna viðburðarins.

Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar hyggst gera mikið úr heimsókninni og skapa eftirminnilegan viðburð í kringum keppnina, bæði fyrir íslenska og bandaríska gesti.

Það er merkileg saga að baki heimsókninni.

„Fyrir 25 árum fórum við vestur um haf á meðan við vorum enn að berjast fyrir því að fá að stunda íþróttina okkar löglega á Íslandi. Nú, 25 árum síðar, fáum við tækifæri til að taka á móti stórum bandarískum hópi hér í Hafnarfirði. Það er ótrúlega skemmtilegt að sjá hvernig sagan hefur þróast og við ætlum að gera þetta að kvöldi sem fólk gleymir ekki,“

Gunnar Guðjónsson, Formaður HFH

Viðburðurinn verður ekki aðeins hnefaleikakeppni heldur einnig 25 ára endurfundir og ákveðin hátíð íslenskra hnefaleika – frá því að þurfa að sækja erlendis til að berjast fyrir tilverurétti íþróttarinnar yfir í að geta boðið erlendum keppendum til stórs hnefaleikakvölds á Íslandi. Nánari upplýsingar um keppendur, dagskrá, miðasölu og viðburði tengda heimsókn bandaríska hópsins verða kynntar síðar.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version