Hlaðvarp MMA Frétta er snúið aftur eftir 3 vikna hlé yfir hásumarið. Núna mun þátturinn halda áfram með hefðbundnum hætti og koma út einu sinni í viku og ræða helstu fréttir og úrslit úr MMA heiminum.
Þar sem breytingar hafa orðið á mannskap MMA Frétta mun uppbygging hlaðvarpsþátta Fimmtu lotunnar taka vægum breytingum þar sem við munum fá til okkar fleiri gesti en áður og umræðu um óþekktari bardagamenn í UFC og annars staðar að utan verður að mestu sleppt.
Birkir Guðmundsson sem er einn af stofnendum Fimmtu Lotunnar tók ákvörðun um að hætta í hlaðvarpsþættinum og leita í ný verkefni tengd tónlist og MMA. Birkir, oft kallaður Biggi Bomba, getur gengið stoltur frá Fimmtu Lotunni enda búinn að skila inn óbilandi vinnu í hlaðvarpið auk þess sem að þátturinn er í raun upprunalega hans hugarfóstur. Fimmta Lotan verður því alfarið undir stjórn Nonna Sleggju þangað til MMA-fróður sérfræðingur finnst til að taka við af Birki. Nýjasti þáttur Fimmtu Lotunnar er í hlekknum hér fyrir neðan.
