Virna Jandiroba skilaði afar sterkri frammistöðu þegar hún sigraði Tabötu Ricci í co-main bardaganum á UFC Fight Night í Apexinu. Hún stjórnaði fyrstu tveimur lotunum með afgerandi glímu og lét engan vafa leika á úrslitunum.
Jandiroba náði ítrekað fellum snemma í bardaganum og hélt Ricci niðri í langan tíma. Hún safnaði miklum yfirráðum á jörðinni og tók fram úr Carla Esparza fyrir mestan samanlagðan control tíma í strávigtinni. Samtals var hún með yfir sex mínútur, sem undirstrikar hversu einhliða fyrstu loturnar voru. Hún sýndi einnig góða takta standandi og felldi Ricci með höggi seint í annarri lotu.
Þriðja lotan varð mun jafnari og þróaðist í skrautlegan standandi slag þar sem Ricci átti sín augnablik. Hún var farin að lesa betur í fellutilraunir Jandiroba og varði nokkrar þeirra, en ljóst var að hún þurfti að klára bardagann til að vinna. Það tókst þó ekki. Þegar leið á loka mínúturnar tók Jandiroba aftur völdin, náði fellu, tók bakið og læsti body triangle. Þar endaði bardaginn með Ricci undir pressu, að taka við höggum á meðan tíminn rann út.
Þetta var heilsteypt frammistaða frá Jandiroba, sem lagði grunninn með yfirburðum í fyrstu tveimur lotunum og lokaði svo bardaganum af öryggi með sterkum endaspretti. Að bardaganum loknum kallaði hún eftir Mackenzie Dern og sagðist vilja mæta henni aftur í titilbardaga.
