Renato Moicano sýndi af hverju hann er einn tæknilegasti léttvigtarbardagamaður heims þegar hann kláraði Chris Duncan með uppgjafartaki í annarri lotu í aðalbardaga kvöldsins. Moicano var einfaldlega skrefi á undan allan tímann og stjórnaði bardaganum frá fyrstu sekúndu.
Í fyrstu lotu var yfirburðurinn augljós. Moicano var hnífskarpur í standandi bardaga, las allar tilraunir Duncans og svaraði þeim strax. Hann varði lágspörk, hitta endurtekið með stungunni og blandaði inn glímu þegar honum hentaði, þar sem hann þrýsti Duncan upp að búrinu og tók af honum allt flæði. Duncan virtist einfaldlega ekki finna lausnir.
Í annarri lotu kom augnablikið sem breytti öllu. Moicano setti upp 1–2–3 samsetningu þar sem stungan og hægri höndin snertu lítið eða fóru rétt framhjá, en opnuðu vörnina. Síðan small vinstri krókurinn beint á markið og setti Chris Duncan niður. Þetta var fullkomin tímasetning og framkvæmd.
Eftir höggið fór Moicano beint í bakið og sýndi síðan algjöra stjórn í jörðinni. Með body triangle læst hélt hann Duncan föstum, vann sig rólega að uppgjafartakinu og notaði stutt högg til að opna vörnina. Þetta var ekki fljótfærni heldur þolinmæði og nákvæmni.
Þegar hann loksins fór í rear naked choke virtist það ekki einu sinni vera fullkomlega komið undir hökuna, en það skipti engu máli. Styrkurinn og tæknin hjá Moicano voru þannig að Duncan neyddist til að tappa nánast strax.
Duncan, sem kom inn sem sigurstranglegri, átti einfaldlega engin svör. Hann var brotinn niður, bæði líkamlega og tæknilega, gegn bardagamanni sem var betri á öllum sviðum. Þetta var ekki bara sigur, þetta var yfirburðasýning. Renato Moicano sýndi að þegar hann er svona beittur er hann hættulegur hverjum sem er í deildinni.
Hann undirstrikaði trú sína á Guði í viðtalinu eftir bardaga og nefndi boðorðin 10 sem hann segist reyna lifa eftir. Hann kallaði svo eftir auðveldum bardaga gegn einhverjum á Topp 15 listanum og minnti fólk á að fylgjast með sér á YouTube þar sem hann segist vera græða fullt af pening. Eins og allir vita elskar Money Moicano pening!
