Home Erlent Barbosa sigrar Gatto eftir eitt umdeildasta atvik ársins

Barbosa sigrar Gatto eftir eitt umdeildasta atvik ársins

0

Dione Barbosa vann Melissa Gatto með meirihluta­ ákvörðun á UFC Vegas 115 í gær eftir eitt umdeildasta atvik kvöldsins, og jafnvel ársins, þegar Gatto virtist rotað eftir ólöglegt högg en bardaginn hélt samt áfram.

Atvikið átti sér stað í annarri lotu þegar Barbosa sparkaði með svokölluðu “soccer kick” beint í andlit Gatto á meðan hún var enn með hendur og sköflung á gólfinu, og því jarðbundin eða “grounded” samkvæmt reglum. Höggið lenti hreint og Gatto féll til jarðar þar sem hún virtist vera rotuð eða að minnsta kosti verulega sködduð.

Dómarinn stöðvaði bardagann og farið var í langa yfirferð þar sem læknar og nefnd skoðuðu atvikið. Þrátt fyrir alvarleika höggsins var Barbosa ekki dæmd úr leik heldur aðeins tekið af henni eitt stig. Gatto fékk tíma til að jafna sig og ákvað sjálf að halda áfram.
Eftir að bardaginn hófst aftur náði Barbosa fljótt aftur stjórn, sérstaklega í glímunni, og stjórnaði restinni af bardaganum á leið sinni að sigri með meirihluta­dómi.

Atvikið vakti strax gríðarleg viðbrögð innan MMA-heimsins. Sumir töldu að þetta hefði átt að vera beinn frávísunarsigur (DQ) fyrir Gatto. Bardagamaðurinn Jeff Molina sagði meðal annars: „This is how people die,“ og gagnrýndi harkalega að bardaginn hefði haldið áfram.
Á hinn bóginn voru ekki allir sammála. Charles Johnson gaf í skyn að Gatto hefði ýkt áhrif höggsins og sagði: „she faked passing out for the point.“

Þessi atburðarás hefur því skipt MMA-heiminum í tvo hópa. Annars vegar þá sem telja að öryggi Gatto hafi verið sett í hættu og að Barbosa hefði átt að vera dæmd úr leik. Hins vegar þá sem benda á að aðstæður hafi verið óljósar og að rétt hafi verið að leyfa bardaganum að halda áfram.

Það sem er þó ljóst er að þetta atvik mun lifa lengi í umræðunni sem eitt umdeildasta augnablik UFC á síðari árum. Dæmi nú hver fyrir sig:



NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version