Deontay Wilder bar sigur úr býtum gegn Derek Chisora með klofnum dómaraúrskurði í þungavigtarbardaga þeirra í O2 höllinni í London í gærkvöldi, í viðureign sem olli mörgum vonbrigðum eftir miklar væntingar.
Deontay Wilder og Derek Chisora mættust í bardaga sem var 50. atvinnubardagi fyrir báða menn og fyrirfram var búist við sprengikrafti og jafnvel rothöggi, en í staðinn fengu áhorfendur hægan og óskipulagðan bardaga þar sem tempóið datt oft niður.
Bardaginn fór allar 12 loturnar og einkenndist frekar af þreytu, clinchi og brotakenndum höggaskiptum en skýrum yfirburðum. Báðir menn áttu sín augnablik, en hvorugur náði að taka afgerandi stjórn lengi í einu.
Eftir jafnar fyrstu tvær lotur átti Chisora nokkrar góðar lotur í röð og var að lenda overhand höggum og skrokkshöggum þegar hann komst í návígi. Wilder átti þó sterkari kafla inn á milli, meðal annars þegar hann virtist nálgast stöðvun í áttundu lotu, en Chisora sýndi eins og svo oft áður mikla seiglu og lifði allt af.
Að lokum dæmdu dómarar bardagann Wilder í vil með klofnum úrskurði, þar sem tveir dómarar sáu hann sem sigurvegara en einn var ósammála.
Eftir bardagann beindist umræðan þó ekki að frammistöðunni heldur gæðum bardagans sjálfs. Margir lýstu honum sem ruglingslegum og tæknilega slökum, þar sem hjartað og viljinn voru til staðar en gæðin ekki endilega á sama stigi.
Chisora fékk mikinn stuðning frá áhorfendum í því sem gæti hafa verið hans síðasti bardagi, en Wilder virðist nú horfa á stærri verkefni næst, þar á meðal mögulegan bardaga við Anthony Joshua.
Þrátt fyrir sigurinn er óhætt að segja að þetta hafi ekki verið sú frammistaða sem kveikir mikla spennu fyrir framtíð Wilder, heldur frekar bardagi sem gleymist fljótt. Það sem hefur fengið mesta athygli er að Wilder virtist segja við Chisora í miðjum bardaga: “Fyrirgefðu, ég elska þig”.
