Home Erlent Jon Jones og Cormier í orðaskiptum á Twitter

Jon Jones og Cormier í orðaskiptum á Twitter

0

jones cormierÓhætt er að segja að það sé lítill kærleikur á milli Jon Jones og Daniel Cormier. Kapparnir áttu í orðaskiptum á Twitter í gær.

Jones hefur nú lokið banninu sínu og mun væntanlega reyna að endurheimta titilinn sinn á næsta ári. Daniel Cormier heldur beltinu eftir að Jones var sviptur titlinum.

Búist er við að kapparnir mætist í New York í apríl en það yrði fyrsti viðburður UFC í New York. Sem stendur er MMA ólöglegt í New York en UFC freistar þess að New York ríki mun leyfa það á næstunni og hafa bókað Madison Square Garden í apríl.

New York er heimaborg Jones en Cormier sagði eftir sigur sinn á Alexander Gustafsson að Jones ætti ekki skilið að fá að berjast í New York eftir allt sem hann hefur gert. Jones segist vera sama hvar bardaginn fari fram.

Jones er nú á skilorði eftir brot sín og auðvitað notaði Cormier það til að pota í Jones

Jones svarar:

Og hélt svo áfram..

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version