Home Erlent Myndband: Conor McGregor gegn Fjallinu

Myndband: Conor McGregor gegn Fjallinu

0

Gunnar Nelson Hafþór Júlíus Conor McGregorÍ gær birtist mynd af þeim Gunnari Nelson, Hafþóri Júlíusi Björnssyni og Conor McGregor. Nú hefur myndband af þeim McGregor og Hafþóri að æfa birst á netinu.

Myndin var tekin í Straight Blast Gym í Dublin á dögunum þar sem þeir Gunnar og McGregor æfa saman. Kapparnir eru um þessar mundir að undirbúa sig fyrir bardaga sína á UFC 194 þann 12. desember.

Hafþór Júlíus Björnsson, oft þekktur sem Fjallið úr Game of Thrones, kíkti á strákana í SBG í Dublin. Þeir Hafþór og McGregor hafa greinilega tekið smá æfingu saman sér til gamans eins og sjá má hér að neðan.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version