Íslenska hnefaleikaundrið Kolbeinn Kristinsson mun berjast sinn tuttugasta atvinnumannabardaga í hnefaleikum þann 30. maí næstkomandi! Eins og flestum er kunnugt neyddist Kolbeinn til að draga sig úr bardaganum sínum gegn Sasa sem átti að fara fram í Gamla Bíó í vor og hefði sá viðburður brotið blað í íslenskri hnefaleikasögu en hætta þurfti við sýninguna vegna meiðslanna. Kolbeinn hefur núna náð fullum bata og er tilbúinn í næsta verkefni. Andstæðingurinn að þessu sinni er Tékkinn Pavel Sour. Kolbeinn berst ásamt Emin Kadri og munu þeir félagar vera fulltrúar Íslands á mögulegu bardagakvöldi í Danmörku.
Kolbeinn er, eins og alþjóð veit, ósigraður í hnefaleikum og stæðir sínu 19 – 0 meti. Kolbeinn barðist síðast gegn Pedro Martines í Oulu í Finnlandi sem hefur verið hans heimaland í hnefaleikum til þessa. Kolbeinn er enn sem komið er tvöfaldur heimsmeistari og heldur bæði Baltic Union og WBF heimsmeistaratitlunum í þungavigt. Í þetta skipti er förinni heitið til Danmerkur þar sem Kolbeins bíður bardagi gegn Pavel Sour í 10 lotu co-main event. Hnefaleikakvöldið er haldið af Danish Fight Night og er mótshaldarinn Bettina Palle vægast sagt spennt að fá Kolbein til sín enda mikil spenna, eftirvænting og skemmtun sem fylgir bardögunum hans Kolbeins.
Kolbeinn rifbeinsbraut andstæðing sinn í annarri lotu í síðasta bardaga og hefur reynst erfitt fyrir hann að fá almennilega andstæðinga síðan þá þar sem mögulegir andstæðingar vilja fá svo mikið greitt fyrir hverja lotu. Sour er ekki þessi stóri andstæðingur sem Kolbeinn er búinn að vera að bíða eftir en Kolbeinn er í fantagóðu formi enn þá síðan í apríl og að eigin sögn er mikilvægt að hann komist inn í hringinn og fái að berja einhvern svo að allar æfingarnar og formið fari ekki í vaskinn.
Bardaginn í Kaupmannahöfn er eins konar heimkoma konungsins þar sem Kolbeinn bjó bæði í Danmörku á sínum yngri árum og rotaði einu sinni vonarstjörnu Dana í þessari sömu keppnishöll fyrir 10 árum.
Liðmenn Kolbeins eru í viðræðum við sjónvarpsstöðvar hérna heima og vonast til þess að bardaginn verði sýndur á einum af íþróttastöðvunum okkar en upplýsingar um útsendingu munu eflaust berast þegar nær dregur. Að öðrum kosti verður hægt að horfa í gegnum https://ekstrabladet.dk/ en þessi risafjölmiðill annast útsendingu viðburðarins.
Kolbeinn er sem stendur í 74. sæti á heimslista en sigurinn gæti fleytt honum upp í 63–65 sæti og tryggt stöðu hans enn betur sem næsti áskorandi á stærstu heimsmeistaratitla í boxheiminum.
Emin Kadri, næsta efni Íslands í hnefaleikum, mun einnig berjast á kvöldinu í Danmörku. Emin átti einnig að berjast í Gamla Bíó þann 10. apríl og er því í sömu stöðu og Kolbeinn, fyrir utan meiðslin að sjálfsögðu. Emin hefur verið í stífum æfingum síðan og hefur líklega aldrei verið beittari en núna!
Sá ungi er líka ósigraður en hann mætir Erik Mato (1 – 4) í Kaupmannahöfn laugardaginn 30. maí.
Fyrir áhugasama sem vilja skella sér til Köben í helgarferð og horfa á íslenska hnefaleikainnrás í Danaveldinu er hægt að skoða allar helstu upplýsingar hérna.
