Header_Ad
Home Box Kolbeinn staðfestir tímamótabardaga á DAZN

Kolbeinn staðfestir tímamótabardaga á DAZN

0

Kolbeinn Kristinsson, atvinnumaður í hnefaleikum, hefur skrifað undir risastóran samning og mun berjast á hnefaleikakvöldi í Dusseldorf 28. nóvember. Sýnt verður frá hnefaleikakvöldinu á DAZN, sem er stærsti útsýningaraðili hnefaleika í heiminum. Þetta er risastór viðburður þar sem að ríkjandi WBC þungavigtarmeistarinn Agit Kabayel mun verja beltið sitt gegn Albananum Nelson Hysa. Búast má við að sextíu þúsund manns verði í salnum á þessu risavaxna hnefaleikakvöldi í Þýskalandi.

Eins og alþjóð veit er Kolbeinn Kristinsson ósigraður í hnefaleikum og með 20 sigra á bardagaferlinum. Hann kemur til með að mæta heimamanninum Granit Shala í 8. lotu bardaga þann 28. nóvember. Til stóð að bardaginn yrði 10 lotur en vegna skipulagstíma í sjónvarpinu varð bardaginn að vera átta lotur.

Ekki er búið að birta endanlega uppröðun á kvöldinu en Kolbeinn staðfestir í samtali við MMA Fréttir að hann verði á aðalhluta kvöldsins og líklega nálægt aðalbardaganum. Kolbeinn gerir ráð fyrir að mæta snemma til Þýskalands og stefnir á að vera kominn á staðinn á mánudeginum fyrir bardagahelgi. Kolbeinn er skyldugur til að mæta á ýmsa fjölmiðlaviðburði í kringum bardagann enda ekki um litla framleiðslu að ræða. Við Íslendingar fáum því mikið efni um Kolbein fyrir bardagann s.s. opnar æfingar, blaðamannafund og vigtun svo dæmi séu tekin.

Andstæðingur Kolbeins er Granit Shala (18 –2) sem er 30 ára gamall þjóðverji. Sá er með sjö rothögg á ferilskránni en töpin hans tvö komu gegn Petar Milas og Oleksandr Zakhozhyi og voru bæði titilbardagar. Granit berst í hefðbundinni stöðu (Orthadox) og er vinstri krókurinn hans baneitraður og líklega hans besta vopn.

Að sögn Kolbeins hafði hann mörg tilboð á borðinu og hafði úr ýmsu að velja þegar kom að því að velja síðasta bardaga ársins. Honum stóð til boða að berjast í Danmörku upp á lítinn þungavigtartitil og á undirkortinu þegar Anthony Joshua mætir Tyson Fury í Wales. Bæði tilboðin voru freistandi en Kolbeinn ákvað að lokum að fara til Þýskalands.

MMA Fréttir munu ferðast með Kolbeini til Þýskalands í lok mánaðar og leyfa íslenskum aðdáendum að fylgjast með öllu sem fer fram í kringum þennan risa stóra bardaga.

NO COMMENTS

LEAVE A REPLY

Turn on JavaScript to leave a comment.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version