Alexander Volkanovski hefur sett fram nýja hugmynd varðandi næsta skref á ferlinum. Ástralinn vill helst fá tækifæri til að berjast við Justin Gaethje um léttvigtarbelti UFC, en sé Gaethje ekki áhugasamur um bardagann er Volkanovski tilbúinn að mæta Arman Tsarukyan í staðinn.
Volkanovski hefur verið ötull í að kalla eftir svokölluðum „tvöföldum kveðjubardaga“ gegn Gaethje. Hugmyndin er að þeir berjist um léttvigtarbeltið og leggi hanskana á hilluna að bardaganum loknum, óháð úrslitum. Volkanovski hefur jafnframt sagt að hann sé tilbúinn að yfirgefa fjaðurvigtardeildina og láta beltið af hendi til að koma bardaganum í gegn.
Það er þó óvíst hvað Gaethje ætlar sér. Hann hefur gefið til kynna að hann sé að íhuga framtíð sína í íþróttinni og hefur ekki skuldbundið sig til þess að verja léttvigtarbeltið. Arman Tsarukyan bíður hins vegar eftir titilbardaga og hefur styrkt stöðu sína með glæsilegum sigrum undanfarið.
Í viðtali við Yahoo! sagði Volkanovski að hann væri tilbúinn að taka slaginn við Tsarukyan ef Gaethje ákveður að hætta eða hafnar bardaganum. „Ef Gaethje vill ekki gera þetta, þá geri ég það. Ég gegn Arman um beltið. Ég er spenntur fyrir því.“ sagði Volkanovski.
Ástralinn fór einnig yfir hvað hann telur gera bardagann áhugaverðan. Hann ber mikla virðingu fyrir glímu- og fellitækni Tsarukyan, sem hann telur vera einn besta glímukappa UFC. Volkanovski er þó sannfærður um að hann geti staðið upp aftur ef Tsarukyan nær honum niður og komið bardaganum aftur í standandi stöðu.
„Allir vita hvernig ég stend mig gegn glímumönnum. Ég veit að ég get tekist á við þá. Arman er frábær glímumaður og einn sá besti í UFC, en hann mun ekki halda mér niðri,“ sagði Volkanovski. Hann bætti við að Tsarukyan væri einnig með góða standandi tækni og að viðureign þeirra gæti orðið mjög skemmtileg.
Tsarukyan hefur sjálfur lýst yfir áhuga á bardaga við Volkanovski. Hann hefur þó ekki farið mjúkum höndum um Ástralann og meðal annars kallað hann gamlan og efast um höggþol hans. Tsarukyan hefur einnig gagnrýnt Gaethje og gefið í skyn að léttvigtarmeistarinn sé að forðast bardagann gegn honum.
Volkanovski er nýbúinn að verja fjaðurvigtarbeltið með sigri á Movsar Evloev á UFC 333, þar sem hann stöðvaði áður ósigraðan Rússa í annarri lotu. Nú virðist hann horfa til þess að enda ferilinn með einum stórum bardaga í léttvigtinni. Hvort það verður gegn Gaethje eða Tsarukyan á eftir að koma í ljós, en Volkanovski hefur gert það ljóst að hann er tilbúinn í báðar viðureignirnar.
