Tjarnarbíó var troðfullt laugardaginn 27. júní, þegar Mjölnir stóð fyrir Stockton Grand Prix Invitational, þar sem átta af fremstu glímumönnum landsins mættust í útsláttarkeppni um 200.000 króna verðlaunafé. Auk þess voru veittar 15.000 krónur fyrir hvert uppgjafartak, en í fyrsta sinn á Íslandi voru peningaverðlaun í boði fyrir sigurvegara slíks glímumóts.
Það var Mikael Aclipen sem stóð uppi sem sigurvegari eftir glæsilegt kvöld. Hann hóf keppni á því að leggja Egil Blöndal að velli með uppgjafartaki í fyrstu umferð áður en hann hafði betur gegn Breka Harðarsyni eftir dómaraúrskurð í undanúrslitum.
Í úrslitaglímunni beið hans Stefán Fannar, sem hafði unnið Hrafn Þráinsson með uppgjafartaki í fyrstu umferð og síðan lagt Bjarka Þór Pálsson að velli í undanúrslitum með Achilles-lás eftir rúmlega hálfrar mínútu glímu. Úrslitin urðu jöfn og spennandi og þurftu dómarar að skera úr um sigurinn, sem féll Mikael í vil.
Hinum megin í útsláttarkeppninni hafði Breki Harðarson unnið Vilhjálm Arnarson eftir dómaraúrskurð, á meðan Bjarki Þór hafði betur gegn Marek Gorczyca, einnig eftir dómaraúrskurð.
Auk Grand Prix-keppninnar fór fram sérstök ofurglíma þar sem Ólöf Embla Kristinsdóttir og Hekla María Friðriksdóttir mættust um 65.000 króna verðlaunafé. Þar að auki var 15.000 króna bónus í boði fyrir uppgjafartak. Ólöf Embla átti sannfærandi frammistöðu og innsiglaði sigurinn með glæsilegu heel hook uppgjafartaki.
Viðburðurinn þótti takast afar vel og skapaðist frábær stemning í troðfullu Tjarnarbíói. Hægt er að horfa á upptöku af Stockton Grand Prix Invitational á YouTube.
