Mikael Leó Aclipen hefur ekki barist síðan í ágúst 2024 vegna slæmra meiðsla sem hann greindi frá í viðtali við MMA Fréttir. Mikael mætir frakkanum Raphael Navello á Glacier Fight Night 2 í Framheimilinu en bardaginn verður hans áttundi á ferlinum.
Mikael var brattur í viðtali við MMA Fréttir á æfingu, fjórum dögum fyrir bardaga, og sagðist ætla að taka andstæðinginn niður og níðast á honum. Það er ekkert leyndarmál að leikáætlun Mikael sé að glíma og ná mönnum í gólfið en flestir eiga talsvert erfitt með að eiga við hann á því sviði.
Mikael lýsti andstæðingi sínum sem tæknilegum striker og notaði orðin “creative” og “snappy” til að lýsa honum. Hann sagði að hann minnti sig á fyrrverandi æfingafélaga sinn Venet Banushi og nefndi góð högg sem lenda hratt. Raphael Navello er með fjóra sigra og eitt tap á áhugamannaferlinum en hann tapaði fyrsta bardaganum sínum í janúar á þessu ári á klofinni dómaraákvörðun og verður eflaust ákveðinn að koma sér aftur á sigurbraut.
