Home Innlent Mjölnir sendir 6 fulltrúa á Norðurlandamót í MMA

Mjölnir sendir 6 fulltrúa á Norðurlandamót í MMA

0

Næstu helgi mun Mjölnir senda 6 fulltrúa á Norðurlandamót í MMA sem haldið verður í Skara, Svíþjóð og nefnist Nordiska Mästerskapet MMA 2026. Mótinu verður streymt í gegnum fightertv.se en aðgangurinn kostar 139 sænskar krónur.

Mótið fer fram 16.-17. janúar og það verða þeir Logi Geirsson, Steinar Bergsson, Anton Smári Hrafnhildarson, Viktor Gunnarson, Þorleifur Feykir Veigarsson og Júlíus Bernsdorf sem ferðast út og keppa fyrir Mjölnis hönd og Íslands.

Undanúrslitin verða á föstudeginum og úrslit á laugardaginn en það getur verið að einhverjir dragist beint í úrslit.

Logi Geirsson barðist sinn fyrsta bardaga á ferlinum á sama móti í fyrra og varð fyrsti íslenski norðurlandameistarinn í MMA þegar hann mætti og sigraði Vebjörn Aunet, sem barðist svo gegn Jóni Inga Ástþrúðarsyni í opnunarbardaga fyrsta Glacier Fight Night viðburðarins. Auk Loga kepptu þá Aron Franz Kristjánsson, Mikael Aclipen og Júlíus Bensdorf en Mikael og Júlíus tóku silfrið.

Mjölnir og RVK MMA héldu sameiginlega sparr æfingu fyrr í dag þar sem allir eru ýmist að æfa fyrir Norðurlandamótið og/eða Glacier Fight Night 28. febrúar en margir af Mjölnismönnunum stefna á hvort tveggja.

Hér má finna hlekk á streymið:
https://www.fightertv.se/sv/livestream/s-nordiska-masterskapet-mma-2025-dag1-1y2vmp

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version