HomeErlentOliveira nýr BMF meistari eftir yfirburðasigur á Holloway

Oliveira nýr BMF meistari eftir yfirburðasigur á Holloway

Charles Oliveira sigraði Max Holloway með algjörum yfirburðum og nældi sér í BMF beltið þegar þeir tveir mættust í nótt á UFC 326 sem fram fór í T-Mobile Arena í Las Vegas, Nevada.

Oliveira kom mjög ákáfur út í fyrstu lotu, keyrði í max og lenti góðum höggum. Hann skaut svo í fellu og náði Max í gólfið með rúmar 4 mínútur til að vinna. Oliveira náði Max í side control sem gerði svo mistök og gaf upp á sér bakið. Oliveira reyndi að læsa rear naked choke yfir andlitið á Max frekar en undir hökuna og leit það mjög óþægilega út. Max varðist uppgjafartakinu ágætlega en Oliveira sýndi algjöra stjórn í gólfinu og leit Max aldrei líklegur til að ná að losa sig undan honum.

Max lenti nokkrum ágætum höggum í byrjun annarar lotu en aftur er hann tekinn niður eftir minna en mínútu. Aftur gerir Max mistök að gefa upp á sér bakið en Oliveira er auðvitað einn besti glímumaður í UFC með flesta uppgjafartakssigra í sögunni. Oliveira nær bakinu og reynir að læsa arm in rear naked choke, ekki ósvipað því sem Logi Geirsson gerði á Glacier Fight Night 2. Oliveira nær svo body triangle og lætur Max finna fyrir svakalegum olnbogum. Önnur lota þar sem Oliveira sýnir algjöra yfirburði og áfram hélt það þannig.

Max tókst að verjast fellutilraununum í smástund í þriðju lotu en Oliveira lendir þá góðu hnéi beint framan í Max og nær honum svo í gólfið í side control eftir aðeins 70 sekúndur af lotunni. Oliveira lendir nokkrum góðum olnbogum og er með algjöra stjórn í gólfinu þó Max verjist uppgjafartakstilraununum ágætlega.

Max lendir nokkrum góðum höggum í byrjun fjórðu lotu en aftur sama sagan, Oliveira ýtir honum upp að búrinu og kominn með hann í gólfið eftir tæpa mínútu. Oliveira nær full mount með tvær mínútur eftir af lotunni, lendir svakalegum olnbogum

Í byrjun fimmtu og síðustu lotunnar lendir Oliveira nokkrum mjög góðum höggum, skýtur inn en Max endar þá ofaná. Oliveira nær þó að komast á lappir og nær Max strax niður með tæpar þrjár mínútur til að vinna. Max kemst á lappir í fyrsta skipti eftir að hafa lent undir, nær aðskilnaði með fimm sekúndur eftir. Þeir benda báðir á miðjuna, Charles lendir góðu höggi og Max lendir einu eftir loka bjölluna.
Charles Oliveira endaði bardagann með yfir 20 mínútur af stjórn tíma og sýndi eina mestu yfirburði sem sést hafa í UFC titilbardaga.

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.