Header_Ad
Home BJJ Skólaglíman hófst á þriðjudaginn

Skólaglíman hófst á þriðjudaginn

0

Skólaglíman hóf göngu sína á þriðjudaginn

Fyrsti dagur Skólaglímunnar fór fram í matsalnum í MS síðastliðinn þriðjudag, 4. febrúar. Þar fóru fram 3 glímur í vel nýttu hádegisgléi og gerðu keppendur heiðarlega tilraun til þess að vinna sér inn sæti sem sendiherra skólans á lokadegi mótsins. Skólaglíman er nýtt fyrirkomulag þar sem glímumót er haldið inn í öllum framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu og byggt upp í eitt rosalegt lokakvöld.

Skólaglíma Menntaskólans við Sund fór svo:

Í fyrstu glímu mætti Hrólfur Örn Viðarsson (IG: hrolfur_07) honum Artem Smolnychenko (smolnychenko IG). Hrólfur sigraði með guillotine í fyrstu lotu.

Í annarri glímu mættust þeir Guðmundur Jóhann Guðlaugsson (IG: gudmundur_johann) og Marel Örn Hjaltalín (IG: Marelorn).

Úrslitaglíman var því milli Hrólfs og Marels. Að sögn mótshaldara var glíman hörð en það var Marel sem sigraði í fyrstu lotu með Rear Naked Choke. Marel Örn er glímumeistari MS og keppir á lokakvöldinu.

Næsta glímumót verður haldið í Verzló.

Skólaglíma ungmenna er í boði Orkunnar, RVKMMA, GFR, Seglagerðarinnar Ægir, AAC, Bæjarins Beztu og Þitt Öryggi

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version