Home Erlent Strickland gegn Hernandez – taktískur bardagi í millivigtinni.

Strickland gegn Hernandez – taktískur bardagi í millivigtinni.

0

Á morgun mætast tveir af áhugaverðustu miðvigtarmönnum samtímans þegar Sean Strickland og Anthony Hernandez leiða kvöldið í aðalbardaga UFC Fight Night í Houston. Bardaginn er ekki titilbardagi en hann gæti haft bein áhrif á hver fær næsta tækifæri gegn meistaranum í deildinni.

Samkvæmt opinberum vigtunargögnum mætti Strickland á 185 pundum og Hernandez á 186 pundum og allt bendir til þess að þetta verði fimm lotu þolpróf þar sem stílar skarast á áhugaverðan hátt.

UFC hefur stillt þessu upp sem hááhættubardaga milli númer 3 og 4 í miðvigtinni. Sigurvegari fær líklega að stíga nær titilmyndinni síðar á árinu. Strickland kemur inn sem fyrrverandi meistari með mikla reynslu af fimm lotu bardögum. Hann hefur verið þekktur fyrir stöðuga pressu, háa höggatíðni og óvenjulega varnartækni þar sem hann treystir á high guard, philly shell og stöðugt framstig.

Hernandez er oft kallaður „Fluffy“ en hefur hins vegar verið einn heitasti maður deildarinnar, með átta sigra í röð.

Þessi bardagi er því klassísk uppsetning þar sem reyndur fyrrum meistari sem vill sanna að hann eigi enn leið að beltinu mætir hungruðum manni úr nýrri kynslóð sem vill brjóta sér leið á toppinn.

Veðbankarnir hafa gert upp hug sinn og spá Fluffy sigri og telja hann töluvert sigurstranglegri. Coolbet setur stuðlana á 1,37 Fluffy gegn 3,2 Strickland.

Strickland – pressa, jab og þol

Strickland er einn af fáum bardagamönnum í UFC sem byggja leik sinn næstum alfarið á grunnboxi og stöðugri pressu fram á við. Hans styrkleikar hafa alltaf verið mjög virk jab-lína sem stýrir fjarlægðinni, sterk felluvörn, ótrúlegt þol sem endist léttilega í fimm lotur og andleg seigla.

Hann vinnur bardaga með því að „drekkja“ andstæðingnum með höggamagni frekar en sprengikrafti. Ef hann fær bardagann til að vera standandi verður hann oft mjög óþægilegur fyrir grapplera.

Hernandez – keðjuglíma og stöðug pressa á jörðu

Hernandez er allt öðruvísi verkefni en það Strickland hefur hingað til. Hann er ágætlega öflugur keðjuglímumaður sem skiptir stöðugt milli fellinga, stjórnunar og submissions fyrir utan að vera hinn fínasti striker. Hann á met yfir flestar heppnaðar fellutilraunir í miðvigtinni eða um 45 heppnaðar tilraunir. Hann getur hæglega brotið upp bardagann með því að keyra andstæðinginn sinn upp við búrið bæði til að trufla taktinn og tæma þol andstæðingsins. Þegar bardaginn er kominn í gólfið er hann þungur á andstæðingnum sínum og lætur þá vinna fyrir því að komast upp á fætur aftur.

Fyrstu loturnar eru mögulega þær mikilvægustu.

Ef Hernandez nær snemma niðurfellingum gæti hann breytt hraðanum áður en Strickland kemst í sinn venjulega takt. Ef Strickland heldur bardaganum standandi fyrstu 10 mínúturnar gæti pendúllinn sveiflast honum í vil, þar sem hann er þekktur fyrir að verða sterkari eftir því sem líður á.

Strickland þarf að halda miðju búrsins og nota jabið til að stoppa innkomur. Hernandez mun reyna að loka fjarlægðinni með pressure-step og höggum í líkama áður en hann skýtur inn. Báðir eru þekktir fyrir gott cardio. Þetta verður líklega ekki hraður knockout-bardagi heldur tæknilegt þolstríð.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version