Það er komið að tímamótaþætti Fimmtu Lotunnar, THE BIG 200 !!
Nonni Sleggja er staddur í Eistlandi á Globetrotters campi en Biggi Bomba fékk góða gesti í þáttinn, þá Garp Fletcher og Ella Gunnarsson.
Eins og alþjóð veit þá hefur Elli skorað á Bigga í MMA bardaga og fólkið býður spennt eftir þeirri viðureign. Fyrst þarf Elli að jafna sig á rifbeinsbroti og Biggi þarf að fara í hjartaaðgerð en tveir brothættustu MMA bardagamenn landsins eru gíraðir í slagsmálin.
En mál málanna í þætti vikunnar er að sjálfsögðu UFC 327 þar sem léttþungavigtin fékk nýjan kóng krýndan þegar Carlos Ulberg rotaði Jiri Prochazka á einum fæti eftir að hafa líklega slitið krossband snemma í fyrstu lotu. Jiri sýndi honum miskunn og bauð honum að standa og sveifla sem hann hefði heldur látið ógert því Ulberg fann sitt besta vopn, check vinstri krókinn, og steinrotaði Jiri og tók beltið með heim til Nýjasjálands.
Josh Hokit og Curtis Blaydes fóru í algjört stríð og gáfu aðdáendum einn eftirminnanlegasta bardaga sem sést hefur í þungavigtinni, slóu met fyrir flest þýðingarmikil högg í þriggja lotu þungavigtarbardaga, og Josh Hokit var bætt við Hvíta Hús kortið á staðnum þar sem hann mun mæta rothöggsvélinni Derrick Lewis.
Cub Swanson kvaddi UFC eftir 15 ára UFC feril með nánast fullkomnum hætti þegar hann rotaði Nate Landwehr í fyrstu lotu.
Paulo Costa stimplaði sig svo sterkt inn í léttþungavigt með sannfærandi frammistöðu þegar hann rotaði hinn áður ósigraða Azamat Murzakanov með glæsilegu hásparki í þriðju lotu og ýmislegt annað skemmtilegt gerðist á þessu magnaða kvöldi í Miami.
Tyson Fury og Conor Benn áttu einnig frábærar frammistöður fyrr um kvöldið í Tottenham Hotspur Stadium á hnefaleikaviðburðinum sem var streymt á Netflix og núna stefnir allt í stærsta hnefaleikabardaga í sögu Bretlandseyja, Tyson Fury vs. Anthony Joshua.
Næstu helgi ferðast UFC til Canada þar sem heimamaðurinn Mike Malott fær stórt verkefni en hann mun mæta Gilbert Burns í aðalbardaga kvöldsins.
Allt þetta og gott pepp fyrir næsta Fimmtu Lotu Fight Night í þessum drekkhlaðna tímamótaþætti!
Takk fyrir 200 þætti allir, hlökkum til næstu 200 með ykkur!
Like, share and subscribe!
