Vitalii Korshak mætir Frakkanum Thomas Murris í fyrsta titilbardaga léttvigtar Glacier Fight Night þegar annar viðburðurinn verður haldinn í Framheimilinu nk. laugardag, 28. febrúar. Hér eru tveir reynslumiklir bardagamenn á ferð með samanlagða 25 bardaga reynslu og erfitt væri að finna áhugamanna MMA á hærra stigi á heimsvísu.
Vitalii er ennþá ósigraður með átta sigra undir beltinu og fær nú tækifæri á belti í sínum fyrsta titilbardaga á ferlinum. Andstæðingur hans Thomas Murris hefur þó enn meiri reynslu en Vitalii, með 12 sigra og 5 töp, og hefur bæði unnið belti og tapað því aftur í titilbardögum fyrir AEF Championship, bardagasamtök í Frakklandi.
Við sáum Vitalii síðast í nóvember í fyrra á Glacier Fight Night, fyrsta viðburðinum. Þar mætti hann Yves Musasa og sigraði hann nokkuð þægilega á einróma dómaraákvörðun. Þar á undan sáum við hann á Caged Steel þar sem hann gaf Laurance Charnock sitt fyrsta tap á ferlinum en Vitalii hafði stjórn á þeim bardaga frá fyrstu sekúndu til þeirrar síðustu og sigraði með miklum yfirburðum. Erfitt hefur reynst að finna bardaga fyrir Vitalii hjá Caged Steel eftir þá frammistöðu en nú er reynslumikill og svo sannarlega verðugur andstæðingur fluttur inn til að mæta honum í titilbardaga heima á Íslandi.
Andstæðingur Vitalii, Thomas Murris, er á tveggja bardaga taphrinu en þau tvö töp hafa komið á erfiðum vettvöngum. Síðasta tapið hans kom á Evrópumeistaramóti IMMAF fyrir ári síðan og þar á undan tapaði hann á klofinni ákvörðun á French Championships 2024, gegn Kéoni Lembert sem vann mótið og varð Franskur meistari. Fyrir það var Thomas Murris á góðri sjö bardaga sigurgöngu með ýmsa uppgjafartakssigra, þ.á.m. einn fótalás. Það er nokkuð ljóst að áhorfendur mega eiga von á skemmtilegum bardaga þegar þessir tveir reynsluboltar mætast í búrinu á Glacier Fight Night 2.
Murris æfir í Boxing Squad í Nice, Frakklandi og einn af æfingafélögunum þar er Manon Fiorot, UFC bardagakona sem barðist um beltið í fluguvigtinni í fyrra gegn Valentinu Shevchenko.
