Home Innlent 5 dagar í GFN 2: Logi Geirsson í titilbardaga

5 dagar í GFN 2: Logi Geirsson í titilbardaga

0

Logi Geirsson var valinn MMA bardagamaður ársins 2025 af hlustendum og dómnefnd Fimmtu Lotunnar og byrjaði nýja árið af krafti þegar hann varð tvöfaldur Norðurlandameistari í janúar. Hann mætir nú mögulega sínum öflugasta andstæðingi til þessa, frakkanum Théo Romary, fyrir millivigtartitil Glacier Fight Night 28. febrúar nk. í Framheimilinu.

Logi Geirsson átti frábært ár 2025 sem hefði þó getað verið enn betra því Logi ferðast til Birmingham í lok nóvember til að berjast uppá titil í Battle Arena en viðburðinum var aflýst samdægurs. Logi sigraði þó tvo bardaga á árinu en þann fyrri kláraði hann á aðeins 50 sekúndum. Seinni bardaginn, gegn Milos Nekic, var aðeins meiri brekka en Loga tókst að tryggja sigurinn með uppgjafartaki en fór djúpt inn í þriðju lotu í þeim bardaga. Hann fór svo til Króatíu í október og keppti á MMA móti hjá Croatian MMA Union þar hann vann alla þrjá bardaga sína með uppgjafartaki og var valinn besti “senior” bardagamaður mótsins.

Á Norðurlandamótinu kláraði Logi andstæðingana sína tvo báða í fyrstu lotu, með uppgjafartaki og ground and pound, en hann keppti í tveimur þyngdarflokkum og tók gullið í báðum.

Núna er komið að næstu áskorun og fyrsta bardaganum hans hér á landi. Logi var í áhorfendahópnum á síðasta Glacier Fight Night og lýsti yfir mikilli löngun til þess að taka þátt í því næsta. Hann fær núna tækifærið á að verða fyrsti millivigtarmeistari GFN en andstæðingurinn sem hann mun mæta fyrir beltið gæti vel verið öflugasti andstæðingur sem hann hefur nokkurn tíman mætt.

Théo Romary kemur frá Marseille í Frakklandi og æfir með Marseille Fight Club. Hann er með 5 sigra og 2 töp á áhugamannaferlinum en hann tapaði síðasta bardaga eftir að hafa unnið fimm bardaga í röð þar á undan, þar sem hann kláraði alla andstæðinga sína. Romary er greinilega fjölhæfur bardagamaður en af sigrunum hans fimm hafa þrír komið eftir rothögg og tveir eftir uppgjafaratök.

Logi okkar er afar flinkur þegar kemur að glímunni og hefur hann sýnt það með hverjum uppgjafartakssigrinum á fætur öðrum. Hann hefur aðeins farið alla leið í dómaraúrskurð í sínum fyrsta bardaga og er ennþá ósigraður. Romary hefur hins vegar aldrei verið kláraður og verður því fróðlegt að sjá hvort Logi haldi uppteknum hætti eða hvort Romary nái að gefa honum alvöru mótspyrnu.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version