Nýjasta útspil Reykjavík MMA er hinn ungi og efnilegi Aron Þór Guðmundsson. Sá er 18 ára gamall, blábeltingur í Jiu Jitsu og kemur úr fjölskyldu bardagaunnenda og keppenda. Aron verður fyrsti bardagi strákanna í Reykjavík MMA og fyrsti liðurinn í heilagri þrenningu: Frumraun, pro-bardagi og titilbardagi í þremur bardögum.
Bardaginn fer fram í millivigtinni. Aron er hávaxinn, með mjög langan faðm en grannvaxinn. Hann byrjaði í unglingastarfi Reykjavík MMA og hefur verið fastur liður á nær öllum æfingum, æfingarmótum og keppnum. Hann er með blátt belti í BJJ og kemur úr mikilli judofjölskyldu.
Andstæðingur Arons er Jay Fletcher. Ekki er mikið vitað um Jack annað en að hann er 1 – 0 sem áhugamaður í MMA. Fyrir utan það virðist hann vera algjört huldumeni á netinu. En við vitum að Jay Fletcher æfir í Trojan Martial Arts UK.
Af öllum merkilegum bardögum á laugardaginn er minnst vitað við hverju má búast í þessari viðureign. Við vitum að Aron hefur verið að æfa lengi og er virkilega efnilegur. Spurningin er hversu vel honum tekst að temja taugarnar og fylgja game planinu frá þjálfurunum.
Hægt verður að horfa á veisluna í beinni útsendingu hérna
