Bardagakokkurinn með meiru, Yonatan Francisco Romeru Cruz, frá Reykjavík MMA mun stiga inn í búrið næstkomandi laugardag og berjast sinn fyrsta bardaga í atvinnumennsku á Caged Steel 43.
Bardaginn fer fram í fjaðurvigtinni en Yonatan hefur sagt skilið við bantamvigtina þar sem hann varð Caged Steel meistari og varði beltið sitt einu sinni í áhugamennskunni. Íslenskir MMA-aðdáendur muna kannski eftir Yonatan frá síðasta Glacier Fight Night-kvöldi þar sem Yonatan mætti Arran Oliphant í stórskemmtilegum smacktalk-bardaga.
Þetta stórskemmtilega Glacier Fight Night kvöld var síðasta skipti sem Yonatan barðist en hann tekur núna stóra skrefið inn í atvinnumennskuna þar sem leikurinn breytist töluvert. Í atvinnumennskunni eru hné í höfuð og olnbogar leyfilegir auk þess sem loturnar lengjast í 3x fimm mínútur.
Yonatan er stórskemmtilegur bardagamaður. Hann er með fjólublátt belti í BJJ og mjög aggresívan striking stíl þar sem hann blandar saman höggum uppi og niðri virkilega vel og endar of flétturnar sínar og þungu höggi í höfuðið í leit að rothöggi. Það er blessun í sjálfu sér að Yonatan hafi sagt skilið við bantamvigtina þar sem höggþyngdin hans er mun meiri í fjaðurvigtinni og þyngdarniðurskurðurinn er ekki jafn mikill. Við fáum því líklega sprækan og höggþungan Yonatan í bardagann á Caged Steel 43. Þess má til gamans geta að Yonatan er á styrktarprógrammi hjá Nicola Jouanne sem heldur uppi #Bardagastyrkur á Instagram. Nico hefur fengið mikið lof frá bardagamönnum sem þakka honum fyrir að undirbúa sig fyrir langar lotur og djúpa vatnið í búrinu. Við megum því eiga von á Yonatan í topp formi.
Hver er andstæðingurinn?
Andstæðingurinn að þessu sinni er afganski fyrrum hermaðurinn og blábeltingurinn Shahram Hotak. Sá er 1-2 sem atvinnumaður í MMA. Hann hefur barist fjórum sinnum sem atvinnumaður en frumraunin hans hefur ekki verið viðurkennd af Tapology eða öðrum síðum þar sem úrslitin eða umgjörðin eru talin ótrúverðug. Sigurinn hans Hotak kom gegn ungum Breta sem hafði barist töluvert mikið í áhugamennskunni og var að þreyta frumraun sína í pro. Þetta var fyrir ári síðan og hefur Hotak barist og tapað síðan þá.
Ef við skoðum bardagann hans Hotak á Cage Warriors, sem var hans annar bardagi, þá sjáum við að hann er enginn sérstakur glímumaður. Hann sættir sig ágætlega auðveldlega við botnstöðuna og er frekar týndur þar. Það má þó taka inn í reikninginn að Ryan Campbell, sem var andstæðingur Hotak á CW, er algjört naut af manni. Hann er 180 cm og þar með nokkuð ávaxnari og þykkari en Yonatan, sem á þá líklega ekki jafn auðvelt með að dóminera Hotak í gólfinu eins og Campbell gerði.
Hotak sigraði í bardaga gegn Charlie Balmer í júlí í fyrra þar sem Balmer sem reyndi líka fyrir sér í glímunni gegn Hotak. Hotak átti auðveldara með Balmer en Campbell í glímunni en þetta var þó í grunninn sama sagan. Balmer komst snemma á bakið á Hotak og hótaði Rear Naked Choke mjög kröftuglega þó að það hafi í raun ekki verið í boði eða staðan nógu góð. Hotak tókst að eiga nokkur góð moment standandi en báðir menn virkuðu nokkuð sigurvissir í lok bardagans.
Hotak er með fínasta bensíntank og endist alveg út allar þrjár loturnar. Hann er ekkert rosalegur í glímunni en kann eitt og annað. Hann virðist þó treysta á að dómarinn losi bardagann og láti kappana standa upp í staðinn fyrir að vinna sig upp úr gólfinu sjálfur. Þetta gerir hann með djúpum overhook af vinstri hendinni á meðan hann heldur fast í höfuðið á andstæðingnum með þeirri hægri.
Bardaginn milli Yonatans og Hotak verður á síðari hluta kvöldsins en Caged Steel byrjar klukkan hálf 5 á íslenskum tíma.
