Ukraínska glímuundrið Vitali Khorsak berst á laugardaginn kemur á Caged Steel 43. Þetta verður hans ellefti bardagi í áhugamennskunni og verður þetta hans fyrsta titilvörn á ferlinum. Bardaginn fer fram í léttvigtinni en Vitali sigraði síðast Ali Albazi á Caged Steel með klofinni dómaraákvörðun. Bardaginn við Ali var líklega sá erfiðasti sem Vitalii hefur átt en hann þurfti að grafa djúpt í þeim bardaga til að sækja sigurinn. Sigurinn var hins vegar sætur og skilaði Vitalii titlinum og hefndi fyrir tapið hans Hákons Arnórssonar frá Glacier Fight Night í febrúar.
Vitalii kom sem flóttamaður frá Ukraínu þegar stríðið hófst og settist að á Íslandi en hann stefndi upprunalega til Bandaríkjanna. Kappinn æfir glímu og MMA Reykjavík MMA og hnefaleika í Bogatýr. Hann er sannkallaður íþróttamaður sem byrjaði að glíma 5 ára gamall.
Andstæðingurinn hans Vitali að þessu sinni er heimamaðurinn Jack Cragg. Sá hefur barist 10 sinnum í áhugamennsku og er með jafnt 5-5 sigra/töp á ferilskránni. Jack er að berjast í fyrsta skiptið á Caged Steel en hann hefur mestmegnis barist fyrir Full Contact Contender á ferlinum.
Jack Cragg er virkilega flottur og efnilegur andstæðingur. Hann er líklega ekki með sömu glímugetu og Ali Albazi sem Vitali mætti síðast á Caged Steel en Jack er fullfær um að glíma og er virkilega vel byggður og í góðu formi.
Í rauninni megum við eiga von á því að Vitali ákveði að standa og skiptast á höggum við Jack. Ukraínumaðurinn hefur verið að æfa og bæta sig í striking upp á síðkastið en líklegast fer Vitali inn í atvinnumennskuna þegar honum finnst getan hans standandi vera nægilega góð og flæðandi. Að mati sérfræðinga mun það ekki vera í boði fyrir Jack að skjóta í fellur og fara með bardagann þangað í örvæntingarskyni, sú undankomuleið mun tilheyra Vitali.
Það sem verður spennandi að sjá hérna er hversu miklum framförum Vitali hefur tekið í striking og hvort bensíntankurinn haldi vel ef bardaginn þróast í hreinan MMA-bardaga þar sem kapparnir skiptast á að standa og glíma.
