Home Fimmta Lotan E. 170. Hnefaleika Special: Kristófer Deyemo og Emin Kadri gera upp loka...

E. 170. Hnefaleika Special: Kristófer Deyemo og Emin Kadri gera upp loka umferð bikarmótsins

0

Það er sérstakur hnefaleikaþáttur þessa vikuna en þriðja og síðasta umferð Haustbikarmóts HNÍ fór fram í húsakynnum HR/WCBA um helgina. Stærsti bardaginn var án efa seinni viðureign Nóels Freys Ragnarssonar og Viktors Zoega en Nóel sigraði rétt eins og í annarri umferð og tekur titilinn.

Kristófer Deyemo frá Æsi/Mjölni og Emin Kadri frá HFK/VBC mættu í stúdíóið í fjarveru Nonna Sleggju og gerðu þetta upp með Bigga Bombu. Við spáðum einnig í spilin í öllu því helsta í hnefaleikasenunni út þetta ár en margar stórir bardagar eru framundan úti í heimi og einnig nóg um að vera í íslensku senunni. Hilleröd Boksecup er næstu helgi, Bikarkóngamótið og King of the Ring í lok október, Icebox og Evrópumeistaramótið í nóvember en Viktor Zoega mun keppa þar fyrir Íslands hönd.

Allt saman í boði Mini Garðins, Ingling, Preppbarsins, M Fitness og Myrkvun Gluggatjöld.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version