Home Fimmta Lotan E. 171: Logi Geirs & Viktor Gunnars gera upp Króatíu ferðina og...

E. 171: Logi Geirs & Viktor Gunnars gera upp Króatíu ferðina og UFC Rio

0

Logi Geirsson og Viktor Gunnars unnu gullverðlaun á Croatian MMA Union móti í Zagreb um nýliðna helgi og mættu beint í stúdíóið til Fimmtu Lotunnar á mánudegi þar sem farið var yfir bardagana þeirra, sem og UFC Rio þar sem Charles Oliveira sigraði Mateusz Gamrot. Þeir spáðu einnig í spilin fyrir næstu helgi þar sem UFC heldur til Vancouver, Kanada þar sem Reinier de Ridder og Brendan Allen mætast í aðalbardaga kvöldsins.

Logi og Viktor eru báðir að stefna á bardaga í nóvember á Battle Arena. Ef allt fer eftir óskum mun Logi berjast upp á áhugamannatitil og Viktor mun þreyta frumraun sína sem atvinnumaður. Spennandi tímar framundan!

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version