Halldór Logi og Gunnar Þór, fyrrum Mjölnismenn, hafa í sameiningu ákveðið að stofna nýjan MMA-klúbb á Akureyri. Stefnt er að opnun 600 MMA þann 9. september þar sem boðið verður upp á wrestling og Nogi-glímu undir handleiðslu reynsluboltanna tveggja.
Halldór Logi segir í samtali við MMA Fréttir að draumurinn hafi alltaf verið að opna sinn eigin klúbb. Sjálfur hefur hann verið að æfa og keppa í Jiu Jitsu í 16 ár en eftir að hann varð pabbi fannst honum forgangsröðin í lífinu breytast og tími til kominn að láta drauminn verða að veruleika. Halldóri til halds og trausts verður Gunnar Þór frá Mjölni en sá er með brúnt belti undir Gunnari Nelson, mikla reynslu í hnefaleikum og MMA ásamt því að vera útskrifaður IAK einkaþjálfari.
„Þetta var bara meant to be“
600 MMA mun opna í húsakynnum 600 Klifur. Eftir að Halldór og Gunnar áttu fund með eigendum 600 Klifur um samstarf var ljóst frá fyrstu stundu að þetta væri samstarf sem gæti gengið upp og blómstrað. Halldór segir stemninguna og andann í 600 Klifur sérstaka og var ákveðið að nýi MMA-klúbburinn myndi bera nafn sem myndi hringja í takt við klifurhúsið.
Boðið verður upp á tvær áskriftarleiðir í 600 MMA. Annars vegar aðgang að glímu og líkamsrækt fyrir þá sem vilja bara æfa glímu og svo heildarpakka þar sem iðkandinn fær aðgang að glímu, líkamsrækt og klifri. 600 MMA verður þar með einn af örfáum klúbbum í heiminum sem bjóða upp á bardaga og klifur undir sama þaki.
Vefsíðan er komin í loftið hér fyrir þá sem vilja skoða nánar.
