Justin Gaethje og Rafael Fiziev mættust í hörku co-main bardaga á UFC 313 í gærkvöldi sem endaði með sigri Justin Gaethje á einróma ákvörðun. Fiziev tók bardagann á 12 daga fyrirvara eftir að Dan Hooker neyddist til að draga sig úr keppni og var Fiziev greinilega orðinn þreyttur í 3. lotunni.
Fiziev var mjög yfirvegaður og valdi skotin sín vel í 1. lotu og leit út fyrir að hann væri meðvitaður um að hann þyrfti að fara sparlega með orkuna sína. Fiziev greip spark og tók Gaethje niður snemma í 1. lotu sem kom mörgum á óvart. Fiziev náði Gaethje í reverse triangle og hélt Gaethje þar í dágóða stund og lennti nokkrum góðum höggum í skrokkinn á Gaethje sem tókst þó á endanum að losa sig og komast á fætur. Fiziev sigraði 1. lotu með afgerandi hætti, lenti góðum hnjám í clinchinu og gerði vel í að mixa upp höggununm sínum. Hann fór mikið í skrokkinn og lappirnar á Gaethje sem var sjálfur meira einbeittur á höfuðhöggin.
Gaethje kom sterkur inn í 2. lotu og dýnamíkin breyttist mikið frá fyrri lotunni. Gaethje sló Fiziev m.a. niður með hreinu upphöggi sem hann hélt áfram að lenda út bardagann.
Fiziev var orðinn sjánlega þreyttur í 3. lotu, enda tók hann bardagann með 12 daga fyrirvara. Gaethje sigldi þessu heim í 3. lotu og sagði að lokum við Fiziev að hann vilji ekki berjast við hann aftur nema það verði uppá beltið og bauð Fiziev að koma að æfa með sér.
Gaethje, sem var steinrotaður af Max Holloway í síðasta bardaga, kom sterkur tilbaka í gærkvöldi og sýndi og sannaði að hann er ennþá meðal þeirra allra bestu í léttvigtinni.
