Heimamaðurinn Rafael Fiziev fór frekar létt með Manuel Torres sem var þó greinilega kominn til að sækja sigurinn. Rafael, sem hafði ekki sótt úrslit upp á síðkastið, lét svakalegt spinning kick sem sló Torres alveg út af laginu og gerði Fiziev kleift að stökkva á Torres og klára hann með höggum.
Fiziev sigraði síðast Ignacio Bahamondes einmitt í Aserbaídjan fyrir ári síðan. Það var eini sigurinn sem Fiziev hafði á skránni úr síðustu fimm bardögum.
Fiziev byrjaði virkilega vel í kvöld og stokkaði upp bardagann með því að blanda inn ágætis glímutilburðum snemma í fyrstu lotu. Torrest lenti líklega í þyngsta högginu í lotunni sem varð til þess að Fiziev missti jafnvægið í stutta stund.
Önnur lota byrjaði hratt og lenti Fiziev spenning back kick í vörninni á Torres en það var nóg til að koma honum úr jafnvægi. Fiziev fylgdi svo eftir með höggum sem settu Torrest fyrst í gólfið og á endanum neyddi hann dómarann til að stíga inn í og stöðva bardagann.
Fiziev var virkilega kátur á blaðamannafundinum. Hann kom inn brosandi og ásakaði blaðamenn um að hafa ekki haft trú á sér. Fiziev fékk bónusinn fyrir kvöldið og er alsæll með það enda stefnir hann á að kaupa sér Harley Davidsson hjól og segir alla mótorhjólaunnendur þarna úti eiga að geta skilið gleðina hans.
Hann talar einnig um að síðasta djabbið hans Torres hafi farið beint í augað á sér og orðið til þess að hann sá ekkert út um vinstra augað. Sjónin hans var tvöföld, þreföld og fjórföld. Hann bað hornið sitt um að „þrífa þetta í burtu“ en áttaði sig svo á því að þetta yrði langt kvöld. Þar sem hann sá ekkert út um vinstra augað ákvað hann að henda í spinning kick sem að lenti svona hrikalega vel. Þetta er eitthvað sem hann segist hafa gert nema því sjónin var í ólagi.
Fiziev telur sig ekki vera í umræðunni um titilbardaga og að hann ætli ekki að velta sér upp úr „Miricale stuff“. Hann væri þó til í BMF-beltið og að hann sé fullkominn í bardaga upp á það belti.
