Bardagakvöld UFC var að fara af stað í Baku, Azerbaijan þar sem MMA Fréttur eru staddir að fylgjast með gangi mála. Fyrsti bardagi kvöldsins var viðureign heimannsins Tahir Abdullayev og Brasilímannsins Jefferson Nascimento en báðir voru að þreyta frumsaun sína fyrir samtökin. Bardaginn var stöðvaður í þriðju lotu og sigraði heimamaðurinn Tahir á tæknilegu rothöggi en deila má um lögmæti stöðvunar dómarans.
Bardaginn fór afar hægt af stað og vildi Nascimento dansa ytri hringinn og ekki hleypa Abdullayev of nálægt sér. Abdullayev varð mjög pirraður á því, benti niður á jörðina og sagði Nascimento að hætta að flýja. Nascimento var þó með meiri stjórn á bardaganum og var hægt og bítandi að ná inn ágætis lágspörkum og stungum í búkinn á meðan Abdullayev reyndi að ná honum með stórum sveiflum sem flestar misstu marks.
Í annarri lotu var Abdullayev mikið búinn að kvarta og dómarinn stöðvðai bardagann til að gefa Nascimento orð í eyra og enn frekar milli lotna var kallað í túlkinn til að útskýra betur fyrir Nascimento, líklega láta hann vita að hann ætti ekki að forðast návígið við Abdullayev, sem verður að teljast afar skrítið.
Í þriðju lotu endar Nascimento á bakinu með Abdullayev ofan á að rigna niður höggum sem þó fæst lentu hreint en dómarinn stöðvaði bardagann. Réttilega mætti gagnrýna dómarann fyrir snemmabúna stöðvun og eðlilega vakna upp grunsemdir um heimadómaramennsku en Nascimento sjálfur var a.m.k. mjög ósáttur, skiljanlega.
