Shara Magomedov sigraði Michel Pereira með einróma dómaraákvörðun í kvöld. Það var mikil spenna fyrir bardaganum og tóku heimamenn vel undir með Shara þegar hann gekk inn í búrið. Pereira byrjaði UFC ferilinn sinn vel og virkaði hálf ósigrandi á tímum en núna virðist sem svo að UFC keppendur hafi fundið lausn á vandamálinu sem hann er.
Pereira lenti virkilega góðri beinni hægri hendi á Shara sem setti hann beint í gólfið. Við tók langur kafli þar sem Shara þurfti að berjast með bakið í gólfið og taka við höggum frá Pereira sem vann fyrstu lotuna skuldlaust.
Shara snéri svo spilinu við, fann taktinn og tók algjörlega yfir bardagann og lenti mikið og taktfast á Pereira sem byrjaði að fjara út er leið á bardagann.
Á blaðamannafundinum var Shara sáttur með úrslitin en rólegur eins og alltaf. Hann tók fram á fundinum að hann hafi vitað að þessi hægri hönd væri eina og besta vopn Pereira og var hann hissa á að honum hafi tekist að lenda henni og fundið tækifærið til þess að klára bardagann.
Shara var aðeins bara brattur eftir bardagann. Hann talaði um að vera virkilega hrifinn af Aserbaídsjan og vilja kaupa lóð hérna við hafið. Hann þakkar aðdáendum fyrir stuðninginn og sér eftir því að hafa ekki getað stoppað meira til að sinna þeim. Því miður var hann einbeittur og kominn til að skila úrslitum í bardaganum og ekkert annað.
Shara reyndi að komast á síðasta bardagakvöld sem var haldið í Aserbaídjan og var grimmur þremur vikum fyrir kvöldið að reyna að fá bardaga en það gekk ekki. Miðað við ást hans á landinu megum við eiga von á því að hann verði hér aftur á næsta ári.
Shara kallaði ekki eftir neinum sérstökum andstæðingi eftir bardagann en hann segist vera sjóræningi sem kominn sé til að stela öllu gullinu og eignast öll löndin. Það má túlka það sem svo að hann sé til í hvern sem er.
