Header_Ad
Home Erlent Weili Zhang fór létt með Suarez

Weili Zhang fór létt með Suarez

0

Weili Zhang og Tatiana Suarez mættust á UFC 312 í nótt. Mikil eftirvænting var eftir bardaganum enda þótti Tatiana Suarez líkleg til að geta hreppt beltið af Weili Zhang. Það var þó ljóst snemma í bardaganum að það myndi eflaust ekki gerast.

Tatiana Suarez er þekkt fyrir mikla glímutilburði og sáu margir fyrir sér að Suarez myndi spila inn á þann styrkleika og yfirbuga Weili Zhang í gólfinu. Þegar fyrsta lotan byrjaði virtist það ætla að verða raunin. Tatiana Suarez náði Weili Zhang niður í gólfið með flottum bodylock og hélt henni niðri í þrjár mínútur. Weili Zhang snéri þó við stöðunni og endaði í toppstöðu þegar lotan kláraðist.

Eftir fyrstu lotu var ljóst að Tatiana Suarez hafði hlotið skurð á hægra hnéð sitt. Þessi skurður hafði mikil áhrif á bardagann og vildi Suarez seinna ekki horfa á sárið og leyfði hornmönnunum sínum að lúga að sér að skurðurinn væri ekki svo slæmur.

Eftir fyrstu lotu varð bardaginn algjör einstefna. Weili Zhang var betri standandi og lenti þyngum höggum með hægri hendinni sinni statt og stuðugt út bardagann. Það var alveg ljóst að Tatiana Suarez gat ekki staðið fyrir framan Weili Zhang og skipst á höggum. Fyrir þær sakir byrjaði Suarez að vaða í fellutilraunir sem urðu örvæntingafullar og ósannfærandi.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version