Aron Þór mætti Jay Fletcher í sínum fyrsta áhugamannabardaga Caged Steel 43 rétt í þessu og sigraði á klofinni dómaraákvörðun. Bretinn náði yfirhöndinni snemma í viðureigninni og var nálægt því að stöðva Aron í fyrstu lotu, en Íslendingurinn sýndi mikla seiglu, vann sig aftur inn í bardagann og endaði bardagann af miklum krafti.
Fyrsta lotan var erfið fyrir Aron. Fletcher felldi hann snemma með þungri yfirhandar hægri og fylgdi því eftir með hörðum höggum í gólfinu. Aron lifði þó af erfiðan kafla, komst aftur á fætur og hélt bardaganum gangandi. Fletcher hélt áfram að hitta með yfirhandarhægri og stjórnaði einnig löngum köflum í clinch við búrið þar sem hann m.a. lenti góðum hnjám í skrokkinn á Aroni. Aron reyndi nokkur háspörk þegar hann náði aðskilnaði án árangurs og náði ekki að snúa lotunni sér í hag.
Önnur lotan var mun jafnari. Aron mætti ákveðnari til leiks, setti saman fallega 1–2 höggasamsetningu og náði að grípa eitt af spörkum Fletcher sem setti Bretann tímabundið úr jafnvægi. Mestur hluti lotunnar einkenndist af rólegum höggaskiptum þar sem báðir unnu aðallega með stunginni. Jöfn lota sem dómararnir þrír hafa greinilega ekki verið sammála um en Aron endaði hana sterkt þegar hann lyfti Fletcher upp og grýtti honum niður á dýnuna.
Aron átti sína bestu lotu í þeirri þriðju. Hann jók pressuna, fann betur taktinn í höggaskiptunum og varði vel tilraun Fletcher til að ná honum niður með single leg fellu áður en hann sneri stöðunni sér í hag upp við búrið og náði svo aðskilnaði. Þegar leið á lokamínúturnar fór Aron að finna taktinn sinn og hitta ítrekað með hægri hendinni og setti Fletcher undir mikla pressu. Fletcher blæddi bæði úr nefi og við augabrún þegar leið á lotuna og neyddist ítrekað til að hörfa undan sókn Arons.
Þegar stigadómararnir skiluðu sínum úrskurði var það Aron Þór sem fékk uppgefinn sigur með klofnum dómum. Eftir erfiða byrjun sýndi Aron mikla yfirvegun og seiglu, vann sig jafnt og þétt inn í bardagann og gerði nóg í augum tveggja dómara til að tryggja sér sigurinn. Frábær frumraun hjá hinum unga Aroni Þór og verður skemmtilegast að sjá hans næstu skref í sportinu.
