Vitalii Korshak tryggði sér í kvöld áhugamannatitilinn í ofurléttvigt á Caged Steel 43 með sannfærandi sigri á Jack Cragg. Korshak stjórnaði titilbardaganum nánast frá upphafi til enda með frábærri glímu, sterkri stjórnun á gólfinu og markvissum höggum þegar bardaginn var standandi.
Fyrsta lotan var róleg framan af þar sem báðir menn voru að þreifa fyrir sér. Þegar um hálf lotan var liðin breytti Korshak um gír og smeygði sér undir víða sveiflu frá Cragg og náði glæsilegri double leg fellu. Cragg vann sig aftur á fætur, en Korshak hélt sér límdum við bakið á honum allt þar til lotunni lauk og stjórnaði atburðarásinni með yfirvegun.
Korshak hélt uppteknum hætti í annarri lotu og náði niðurfellingu innan tíu sekúndna frá því bjallan hringdi. Cragg komst aftur á fætur, en Korshak hélt áfram að sýna frábæra tímasetningu með því að beygja sig undir högg andstæðingsins og ná aftur glæsilegri double leg fellu. Þrátt fyrir að Cragg kæmist aftur á lappir hélt Korshak pressunni áfram. Undir lok lotunnar lenti hann svo með hörðu sparki í lifrina sem virtist fara illa í Cragg. Korshak skynjaði strax að hann hefði meitt andstæðinginn og reyndi að þjarma að honum og ráðast aftur á skrokkinn áður en lotunni lauk.
Vitalii byrjaði þriðju lotuna vel og lenti snemma með hreinni vinstri beinni úr örvhentri stöðunni sinni. Korshak náði svo enn á ný fullkomlega tímasettri double leg fellu um 40 sekúndum inn í lotuna. Vitalii stjórnaði bardaganum í gólfinu það sem eftir lifði. Cragg reyndi ítrekað að skrambla út úr stöðunni, en Korshak stöðvaði allar flóttatilraunir, hélt honum föstum og sýndi afar sterka glímu þar til lokabjallan hljómaði.
Lýsendur kvöldsins tóku vel saman hvernig bardaginn þróaðist og sögðu Cragg hafa verið bæði „outstruck and outwrestled“. Það var erfitt að vera ósammála þeirri lýsingu, enda réði Korshak ferðinni bæði í standandi bardaga og á gólfinu.
Dómararnir skiluðu því einróma niðurstöðu og dæmdu Vitalii Korshak sigur, að öllum líkindum 30-27. Með sigrinum tryggði hann sér áhugamannatitilinn í ofurléttvigt á Caged Steel 43 eftir afar sannfærandi frammistöðu og jafnframt ellefta sigur sinn sem áhugamaður í MMA, enn hann er enn ósigraður.
