Hið árlega opna mót Reykjavík MMA, Reykjavík Open, fór fram laugardaginn 28. mars. Keppt var í þremur karlaflokkum ásamt kvennaflokkum, en suma flokka þurfti að sameina til að búa til betri keppni fyrir daginn.
Reykjavík Open er skemmtilegt mót og alveg örugglega eina mótið hérlendis þar sem ekki eru gefin stig meðan á glimrunni stendur. Ef viðureign klárast án þess að uppgjafartak náist þá er haldið í bráðabana.
Alls tóku 45 keppendur þátt á mótinu og var það -85 kg karlaflokkurinn sem var langfjölmennastur með 15 keppendum.
Röðun Úrslita
Sara Locatelli (Mjölnir) sigraði -2 ár 65kg KVK flokkinn
Daníel Egilsson (Mjölnir) sigraði -2 ár 70kg KK flokkinn
Samir Jónsson (Atlantic BJJ) sigraði -2 ár 85kg KK flokkinn
Stefán Fannar (Mjölnir) sigraði +2 ár 85kg KK flokkinn
Breki Harðarson (Mjölnir) sigraði +2 ár +85kg KK flokkinn
Úlfar Kári (VBC) sigraði +2 ár -70 kg KK flokkinn
Kolka Hjaltadóttir (VBC) sigraði +2 ár +65 kg KVK flokkinn. Kolka fékk einnig verðlaun fyrir submission mótsins!
