UFC heldur í kvöld bardagakvöld í Apex-höllinni í Las Vegas þar sem Renato Moicano og Chris Duncan mætast í aðalbardaga kvöldsins. Þó kortið sé ekki það stærsta á pappírnum, þá eru oft einmitt svona kvöld sem skila oft mestum skemmtunum.
Samkvæmt stuðlunum á Coolbet er Chris Duncan talinn sigurstranglegri í aðalbardaganum. Hann hefur verið á miklu flugi undanfarið og kemur inn í sinn fyrsta aðalbardaga í UFC með góða sigurgöngu á bakinu, á meðan Moicano hefur tapað síðustu tveimur bardögum sínum. Veðbankar hafa því snúið sér í átt að Skotanum og hann kemur nú favourit inn í kvöldið.
Það sem gerir bardagann enn áhugaverðari er að þeir æfa báðir hjá American Top Team. Slík staða er sjaldgæf og getur haft áhrif á taktík og undirbúning, þar sem báðir þekkja leik hvors annars vel. Þetta er því ekki bara spurning um hæfileika heldur líka hver nær að aðlaga sig betur á kvöldinu.
Á Coolbet má einnig sjá að bardaginn gæti klárast innan tímamarka, enda eru margir að veðja á að þetta verði ekki fimm lotu stríð. Duncan er þekktur fyrir kraftmikla standandi bardaga en Moicano mun líklega leita í gólfið og reyna að ná uppgjafartaki.
Í co-main bardaganum mætast Virna Jandiroba og Tabatha Ricci í bardaga sem gæti haft áhrif á titilbaráttuna í strávigt. Þar eru línurnar mun jafnari hjá Coolbet, sem endurspeglar hversu erfitt er að spá fyrir um úrslitin.
Einnig eru nokkrir bardagar á kortinu þar sem veðbankar, þar á meðal Coolbet, telja líklegt að bardagar klárist snemma. Sérstaklega hefur verið bent á bardaga Abdul-Rakhman Yakhyaev þar sem margir búast við early stoppage.
Bardagarnir fara fram í nótt á íslenskum tíma og eins og oft áður er hægt að finna spennandi línur á Coolbet fyrir þá sem vilja gera kvöldið enn áhugaverðara.
