Gestur vikunnar er enginn annars en brautryðjandinn sjálfur Gunnar Nelson.
Gunni er án efa sá allra þekktasti í bransanum og bíður þjóðin auðvitað spennt eftir því að fá hann aftur inn í búrið. Við tókum stöðuna á Gunna og ræddum næsta bardaga, lyfjaprófanir, þjálfun og fleira.
Gunni gerði sér svo lítið fyrir og fór yfir UFC 300 kvöldið með okkur.