HomeFimmta LotanHnefaleika Special með boxbræðrunum Nóel og William

Hnefaleika Special með boxbræðrunum Nóel og William

Boxbræðurnir William Þór og Nóel Freyr Ragnarssynir mættu til Fimmtu Lotunnar í Hnefaleika Special til að gera upp vafasama bardaga helgarinnar milli Oleksandr Usyk og Rico Verhoeven ásamt því að byrja upphitunina fyrir Icebox 10 sem verður haldið á Völlunum 12. júní en þeir bræður eru báðir komnir með bardaga þar.

Usyk stoppaði Rico í bláenda 11. lotu eða jafnvel eftir bjölluna og hefur ákvörðun hringdómarans verið harkalega gagnrýnd en Rico hafði komið öllum á óvart með frammistöðu sinni.

Ísak Guðnason frá VBC náði sér í bronsverðlaun á Eindhoven Box Cup um helgina og fórum við aðeins yfir það einnig.

Næstu helgi berjast svo báðir karlkyns atvinnuboxararnir okkar Kolbeinn Kristinsson og Emin Kadri Eminsson á Big Boys Boksegalle í Kaupamannahöfn. Kolli er að fara í tuttugasta atvinnumannabardagann sinn og Emin í sinn fjórða og síðasta fjögurra lotu bardagann en hann er búinn að staðfesta sex lotu bardaga næst í lok ágúst í Finnlandi.

Það er því nóg um hnefaleikaumræðu í þessum hnefaleikaþætti en einnig var farið yfir UFC cardið í Kína næstu helgi og stiklað á stóru en Song Yadong tekur á móti Deiveson Figueiredo á sínum heimavelli í aðalbardaga kvöldsins eða öllu heldur morgunsins því cardið hefst eldsnemma fyrir okkur Íslendinga.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið