Sindri Snorrason sigraði heimamann í sínum öðrum Muay Thai bardaga, sem haldinn var á Moon Fight í Koh Phangan, viðburði sem er alltaf haldinn daginn eftir fullt tungl. Sigurinn kom eftir tæknilegt rothögg með lágsparki.
Sindri tók bardagann með skömmum fyrirvara, aðeins tveimur vikum, en hann var tiltölulega nýbyrjaður að æfa aftur eftir háannatímabil í sínum rekstri en hann rekur hostel á eyjunni Koh Phangan.
Sindri segir að bardaginn hafi verið geggjaður, andstæðingurinn var “mjög game” ungur tælenskur strákur með 30+ bardaga. Hann fékk að heyra 30/40/50, svo þetta var alvöru prófraun fyrir Sindra sem var að taka sinn annan Muay Thai bardaga. Það gekk vel hjá honum framan af en Sindri viðurkenndi að andstæðingurinn var aðeins tæknilegri með spörkin. Leikáætlunin hans var að vera með hátt guard, boxa eins vel og hann gæti og vinna með low kicks. Það gekk greinilega vel og endaði hann á að vinna á tæknilegu rothöggi eftir lágspark.
Sindri þurfti þó að vinna vel fyrir sigrinum en andstæðingnum tókst að opna hann með lúmskum olnboga og þurfti að sauma í hann 6 spor til að loka skurðinum sem hann fékk undir auganu. Það byrjaði að fossblæða þegar olnboginn lenti og læknirinn var kallaður til en bardaganum var leyft að halda áfram. Snorri skipti um gír eftir það að eigin sögn, var staðráðinn í að ná að stöðva andstæðinginn, og úr varð algjört stríð.

Planið var að fá annan bardaga fljótt aftur og berjast sem oftast á þessu ári en vegna skurðarins þarf hann aðeins að sjá til hvernig hann gróir.
Sindri var mjög ánægður með sigurinn: “Þetta var alvöru fokking test, og við komumst í gegnum það með stæl” – og sagðist jafnframt tilbúinn að testa sig við fleiri anstæðinga.
Sindri æfði alltaf bara í hnefaleika heima á Íslandi. Þar æfði hann í Mjölni hjá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur áður en þeir færðu sig yfir í World Class áður en hann flutti til Ástralíu og síðar til Tælands. Hann skipti yfir í Muay Thai því það var lítið um hnefaleika í Koh Phangan. Við Íslendigar erum þá komnir með tvo aktífa keppendur í íþróttinni þar úti en Þorgils Eiður Einarsson hefur einnig verið að gera það afar gott þarna úti undanfarin misseri.





