spot_img
Saturday, February 28, 2026
Minigarðurinnspot_imgspot_imgspot_img
HomeInnlent4 dagar í GFN 2: Einhver missir núllið sitt þegar tvær ósigraðar...

4 dagar í GFN 2: Einhver missir núllið sitt þegar tvær ósigraðar mætast

Hekla María Friðriksdóttir nældi sér í fyrsta uppgjafartakssigur í sögu MMA á Íslandi á fyrsta Glacier Fight Night viðburðinum í nóvember í fyrra þegar hún kláraði Nicole Gomez með rear naked choke í fyrstu lotu. Hekla átti bókaðan titilbardaga í Cork, Írlandi fyrr í mánuðinum sem ekkert varð úr en fékk svo í staðin bardaga á Glacier Fight Night 2 næstu helgi gegn hinni ósigruðu Kathrin Haberle.

Hekla María þreytti frumraun sína í MMA í mars á síðasta ári og endaði árið 3-0 með 100% finishing hlutfall en allir hennar sigrar hafa komið eftir uppgjafartak. Andstæðingur hennar, Kathrin Haberle, kemur frá Þýskalandi og er einnig 3-0 sem áhugamaður í MMA. Hún barðist fyrst á Evrópumeistaramóti IMMAF í fyrra sem hún sigraði og varð Evrópumeistari. Síðan þá hefur hún barist tvisvar til viðbótar og unnið báðar þær viðureignir með rothöggi en hún hefur einnig barist talsvert í kickboxi.

Það gefur auga leið að hér á ferð er týpískur striker vs. grappler bardagi en þó Hekla sé aðallega þekkt fyrir glímuna sína, hefur hún einnig sýnt góða takta í striking og hefur áður mætt góðum strikerum á borð við Nicole Vernon. Vernon gaf Heklu mestu mótspyrnu sem hún hefur mætt á ferlinum en Heklu tókst samt sem áður að tryggja sigurinn með armbar uppgjafartaki í bláendann.

En það er ljóst að einhver missir núllið sitt þegar Hekla og Kathrin mætast á laugardaginn nk. í Framheimilinu.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið