Ailin Perez mætir Karol Rosa á undirkortinu á UFC 311 í kvöld/nótt og gæti með sigri brotist inná Topp 10 en hún situr sem stendur í 13. sæti styrkleikalistans meðan Karol Rosa, sem talin er sigurstranglegri af veðbönkum, situr í því níunda.
Ailin Perez mætti Stephanie Egger í UFC frumraun sinni og tapaði þeim bardaga en bardaginn fór fram í 145 punda flokki sem er í raun ekki til innan UFC kvenna megin. Síðan þá hefur hún farið niður í 135 punda bantamweight þyngdarflokkinn og unnið alla 4 bardagana sína þar og vakið athygli, einna helst fyrir “twerk” fagnaðardansinn sem er orðið að einskonar einkennismerki hennar.
Perez kláraði sinn fyrsta bardaga innan UFC síðast þegar hún steig inn í búr en hún mætti Daryu Zheleznyakova í september sl. og kláraði hana með arm triangle uppgjafartaki í 1. lotu. Perez var þó hálfu pundi yfir 136 punda takmarkinu fyrir bantamvigtina og hefur þurft að gefa hluta af launum sínum til Daryu.

Spurð að því hvernig bardaginn gegn Karol Rosa fari í viðtali við Hablemos MMA svaraði hún full sjálfstrausts:
“I’m going to beat Karol, and I’m going to do it in a way that’s going to leave everyone speechless, just like I did with Darya (Zheleznyakova).
“I’ve been on the hunt for a lot of evolution and learning, not just in the cage to finish my opponents, but also outside of it to evolve on the personal side like a mother, daughter, sister. That’s what I need to keep advancing and continuing undefeated at 135 pounds.”
Spurð út í styrkleika andstæðings síns, Karol Rosa, svaraði hún með virðingu en sagðist samt sem áður örugg að geta klárað bardagann með fallegu rothöggi:
“I think she’s a complete fighter in her style and game plan, but I feel equipped and prepared to finish the fight with a beautiful knockout.”






