Yousri Belgaroui sýndi mikla yfirburði þegar hann mætti Mansur Abdul-Malik og tryggði sér sigur eftir afar sannfærandi frammistöðu á bardagakvöldi UFC Seattle í nótt þar sem Israel Adesanya og Joe Pyfer mættust í aðalbardaga kvöldsins.
Strax í fyrstu lotu tók Belgaroui stjórnina með einföldu en árangursríku leikplani þar sem hann nýtti sér jabbið og lágspark til að stjórna fjarlægðinni. Abdul-Malik átti í miklum vandræðum með að verjast og náði lítið að tjekka spörkin, sem söfnuðust hratt upp.
Sama mynstrið hélt áfram í annarri lotu þar sem Belgaroui nýtti faðminn sinn vel og hélt Abdul-Malik stöðugt utan færis með nákvæmri fjarlægðarstjórnun. Abdul-Malik náði þó einni fellu og virtist vera að komast á bakið, en staðsetningin var of há og Belgaroui náði að losa sig án mikilla vandræða. Bardaginn færðist svo aftur upp við búrið þar sem Belgaroui lenti hné og höggum í clinch.
Lýsandinn Daniel Cormier benti snemma á að hnéin væru að verða lykilvopn og Dominic Cruz tók undir það, en Belgaroui hélt áfram að nýta þau af miklum árangri. Í lok annarrar lotu lenti hann svo þungu hægri höggi sem felldi Abdul-Malik og hann rétt svo lifði af lotuna, greinilega mjög sleginn og þreyttur þegar hann gekk til baka í horn sitt.
Í þriðju lotu var Abdul-Malik augljóslega á niðurleið, bæði þreyttur og særður. Hann reyndi að finna lausnir með snúningshöggum og fellum, en án árangurs og eyddi dýrmætri orku í tilraunir sem skiluðu litlu. Belgaroui hélt stjórninni, lenti reglulega höggum og stjórnaði tempóinu.
Vörnin hjá Abdul-Malik fór versnandi eftir því sem leið á lotuna og að lokum lokaði Belgaroui bardaganum með hné eftir að hafa haldið stöðugum þrýstingi.
Þetta var afar sannfærandi og flott frammistaða hjá Belgaroui sem sýndi bæði tæknilega yfirburði og skýrt leikplan frá upphafi til enda.
Belgaroui er núna búinn að klára tvo mjög spennandi efnilega bardagamenn í röð og þegar hann var spurður í viðtalinu hvað væri næst og hvort hann vildi kalla einhvern út sagði hann að næsta áskorun væri einfaldlega að sparra við “þennan þungavigtarmann” og benti beint á Alex Pereira, en Pereira og Glover Teixeira voru í horninu hans.






